Eplasniglar að fjölga sér

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Eplasniglar að fjölga sér

Post by Andri Pogo »

Loksins gerðist það, eftir mikla bið :lol:
tveir af sniglunum mínum hafa verið á fullu síðustu daga og í gærkvöldi þegar ég opnaði lokið á búrinu voru þeir þar að koma eggjum fyrir.
Þeim hefur eitthvað brugðið því þeir misstu einn skammt af eggjum niður í fiskabúrið, ég reyndi að veiða það upp og klessa þeim fyrir ofan vatnsyfirborðið en þau festust ekki við og duttu aftur niður.
Í morgun var annar skammtur af eggjum ofaná bitanum sem liggur fyrir miðju búrsins.
Eggin hafa líklegast átt að vera undir lokinu en dottið niður á bitann.

Eiga eggin bara að fá að vera þar í friði og klekjast þau út þar?
Hversu langan tíma tekur þetta ferli?
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Láttu eggin bara í friði en það er gott að úða á þau öðru hvoru ef þau eru á mjög heitum stað. Þú getur fært þau til og jafnvel látið þau á eitthvað sem flýtur og látið svo bara fljóta í búrinu.
eggin klekjast á 2-3 vikum en þó getur það verið allt að 5 vikum.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ok takk fyrir það, ég pæli aðeins í hvað ég geri við þau, þau eru mjög nálægt ljósinu þannig það væri kannski best að finna betri stað.
-Andri
695-4495

Image
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Eplasniglar

Post by Bruni »

Skafðu eggin af með rakvélablaði. Settu þau síðan í krukku eða plastdós. Settu smá vatn í krukkuna og eitthvað flatt sem stendur upp úr. Settu eggin þar ofaná og lokaðu ílátinu. Settu þetta síðan upp á skáp og bíddu rólegur. Inni í þessu íláti ætti að vera nægur raki og hiti, allt að 100% klak. Klikkar ekki.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Re: Eplasniglar

Post by Gudjon »

Bruni wrote:Skafðu eggin af með rakvélablaði. Settu þau síðan í krukku eða plastdós. Settu smá vatn í krukkuna og eitthvað flatt sem stendur upp úr. Settu eggin þar ofaná og lokaðu ílátinu. Settu þetta síðan upp á skáp og bíddu rólegur. Inni í þessu íláti ætti að vera nægur raki og hiti, allt að 100% klak. Klikkar ekki.
Sniðugt!
Hvað með súrefni? eða skiptir það kanski engu máli með svona egg
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Eplasniglar

Post by Bruni »

Allt til alls í ílátinu. Heildarlausn. Þrautreynt. :wink:
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Magnað, prófa þetta næst.. :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

buinn að skella þeim í plastbox með vatni, lagði þau ofan á frauðplast. :D
-Andri
695-4495

Image
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Eplasniglar

Post by Bruni »

Gott mál, gefðu þeim tíma og ekkert fikt. :wink:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

lítið mál, er að fara út og kem aftur í lok mánaðar. Það verða kannski komin sniglabörn þá :P
-Andri
695-4495

Image
Post Reply