Fiskabúr fyrir yngstu börnin á leikskóla
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Fiskabúr fyrir yngstu börnin á leikskóla
Börnin mín eru á leikskólanum Smárahvammi í Kópavogi. Á deild yngstu barnanna, Hvammkot, var fiskabúr hluta síðasta vetrar. Þetta búr var í eigu starfsmanns sem nú er hættur og tók búrið með sér.
Starfsfólkinu fannst hafa svo góð áhrif á börnin að hafa búrið að þau óskuðu nýverið eftir aðstoð foreldra við að koma upp nýju búri. Það væri alltaf hægt að fara með einhvern leiðann eða grátandi að skoða fisk
Sem fiskaáhugamanni og meðlimi í foreldrafélaginu rann mér auðvitað blóð til skyldunnar að útvega búr snarlega. Það var því sannarlega heppilegt að Vargur, einn umsjónarmaður fiskaspjall.is og eigandi vefverslunarinnar www.petshop.is er umhugað um framtíð þessa lands og ákvað því að gefa okkur góðan afslátt af Rena Aquarama 80 búri (sem var nú ódýrt fyrir).
Ég geri ráð fyrir að búrið fari upp strax eftir helgi. Ég kem auðvitað með myndir af því.
En á eftir að velja íbúa í búrið. Í búrinu sem var fyrir voru nokkrir gullfiskar og ancistra. Það er í sjálfu sér ágætt val fyrir fiskabúr á deild minnstu barnanna (1,5 - 2,5 ára). Gullfiskar eru litríkir og gjarnir á að koma þegar einhver kemur að búrinu.
Ýmislegt annað kemur líka til greina. Kannski er réttast að fara ekki of geyst í að bæta í búrið, byrja á einhverri lítilli torfu af tetrum, bæta svo einhverjum aðeins stærri fiskum með síðar sem gætu skorið sig svolítið úr og auðvelt er að skoða. Skallar?
Einhverjar ábendingar eða hugmyndir? EInhverjir sem hafa reynslu af því að reka búr í leikskóla?

- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Sæll Hrafnkell.
Ég gæti kanski látið eitthvað af hendi rakna ef það hentar í þetta búr.
Get gefið í þetta búr stóra gullfiska, og svo STÓRA gullfiska, einnig Skala, ungfiska eða stóra.
Þeir eru að þvælast í þessu búri:
Síminn hjá mér er 8600860.
B.kv. SibbiS.

Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Glæsilegt, og flott hjá krökkunum.Hrafnkell wrote:Fiskarnir frá Sibba hressir! Í gær þegar ég kom með börninn í leikskólann voru komnir 2 fiskar til viðbótar. Eitt barnið mætti með þá og þeim skellt í.
Reyni að taka mynd á næstu dögum.
Ertu hættur við að fá skala hjá mér í búrið?
Það verður gaman að sjá myndir af þessu framtaki hjá þér.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Ég átti alltaf eftir að setja inn myndir af búrinu og fiskunum sem Sibbi gaf.
Sibbi gaf leikskólakrökkunum þessa tvílitu, eitthvað foreldri birtist fljótlega með hina tvo.
Þessi mynd er tekin nokkrum dögum eftir uppsetningu búrsins. Síðan þá er bæði búið að færa það á betri hillu (og hærri) og foreldrar búnir að koma með meira skraut í búrið.
Búrið er nú búið að ganga í rúman mánuð og byrjað að bera á þörungi.
Á ekki einhver ancistrur til að gefa í leikskólabúrið?

Fínasta búr hjá þér/ykkur/þeim
Verður gaman að sjá nýlegri mynd.
Ég á eitthvað af mánaðar gömlum ancictrum, kansku rúmlega 1cm. á stærð, þær náttúrulega stækka ágætlega hratt.
Láttu mig vita ef þú hefur áhuga, gefins að sjálfsögðu.
B.kv. SibbiS. 8600860
Verður gaman að sjá nýlegri mynd.
Ég á eitthvað af mánaðar gömlum ancictrum, kansku rúmlega 1cm. á stærð, þær náttúrulega stækka ágætlega hratt.
Láttu mig vita ef þú hefur áhuga, gefins að sjálfsögðu.
B.kv. SibbiS. 8600860
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Á því miður ekki ancistrur, vantar einmitt slíkar en ég get gefið blue gourami (three spotted) 2-3 cm stóra. Veit samt ekki hvort þeir passa með þessu. En þeir eru mjöf forvitnir og fylgjast vel með þegar komið er að búrinu.Hrafnkell wrote:Ég átti alltaf eftir að setja inn myndir af búrinu og fiskunum sem Sibbi gaf.
Sibbi gaf leikskólakrökkunum þessa tvílitu, eitthvað foreldri birtist fljótlega með hina tvo.
Þessi mynd er tekin nokkrum dögum eftir uppsetningu búrsins. Síðan þá er bæði búið að færa það á betri hillu (og hærri) og foreldrar búnir að koma með meira skraut í búrið.
Búrið er nú búið að ganga í rúman mánuð og byrjað að bera á þörungi.
Á ekki einhver ancistrur til að gefa í leikskólabúrið?
-
- Posts: 42
- Joined: 11 Jun 2010, 22:00
- Location: rvk