84 lítra búr. Ameríkanar (+dvergar)

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

84 lítra búr. Ameríkanar (+dvergar)

Post by festivum »

Sæli nú !
þessi þráður mun vera einskonar dagbók, pælingar, myndir, vandræði, vonandi uppfærð reglulega, fer allt eftir hvernig lífið lætur við mig hverju sinni. jájá...

ég var nú byrjuð á einhverjum þræði hérna fyrir lönu síðan en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar svo ég ákvað að gera bara nýjan þráð.

búrið mitt er 84 lítra. íbúar búrsins eru :

1. festivum
2. jack dempsey
3. spilurum
2. synspilrum
2. brúsknefjar

einnig eru í búrinnu fiskar sem Birkir er að safna í búrið sitt, en er ekki búinn að setja það upp, en það eru

3. appelsínugulur fiðrilda síkliður
2. Mcmastery
3. severum
2. bótívur(bótíur?)
1. green terror í XS
1. sae í XL

í búrinu eru líka þrjár tegundir af plöntum (sýnist mér...) sem mér þætti gaman að fá nöfn á. ég tók nokkrar myndir af búrinu um daginn, það var í fíling.
1. búrið í heild :
Image
já, ég veit, flass, ekki mjög pro. en hún heppnaðist bara alveg ágætlega til að sýna hvernig er umhorfs í búrinu :)

2. spengilegi spilurum kallinn, stóra fína plantan sem óskar eftir nafni og severum
Image

3. festivum
Image

4. þrjár plöntur sem óska eftir nafni, severum, bótía og Jack dempsey á hraðferð :
Image


annars eru mjög spennandi hlutir að gerast í búrinnu. "stóra" plantan eins og ég kalla hana vex alveg villt og galið og litla ljósgræna laufið sem er á næst efstu myndinni er orðið stórt og myndarlegt

plöntuvandamálið :

jæja. ég var búin að vera í smá veseni með plönturnar í búrinu, það voru svona dökkir grænir blettir á þeim, ég var ekki búin að gróðursetja þær þá svo ég tók þær og skolaði þær vel undir volgu vatni eins og einhver bennti á og brá á það ráð að nudda þær varlega með svampi, og það virkaði nú bara alveg ágætlega, náði öllum skít og þörung vel af svoleiðis. svo núna, u.þ.b viku eftir að ég gróðursetti þær eru nánast allir blettir farnir af plöntunum!! þvílíkur munur! og þær vaxa bara og vaxa og vaxa....

búrið iðar af lífi og það er frábært að fylgjast með samlífi þessara fiska :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Gaman að fá loks myndir af þessu.
Mér sýnist ég ná að bera kennsl á tvær af plöntunum. Anubias hastifolia og Egeria densa.
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

jahá !

hvaða tvær eru það litli kall ? :)

annars ætla ég að giska á burknalegu plöntuna og rauð/grænu, bara útaf því að þær eru svo algengar... held ég...

annars er fílingur almennur í búrinu og lítið að frétta. nema hvað plönturnar spretta eins og illgresi líkt og fyrridaginn
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

anubias hastifolia er semsagt þessi græna stóra hægra megin í búrinu þínu
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

JinX wrote:anubias hastifolia er semsagt þessi græna stóra hægra megin í búrinu þínu
JESS !!! takk fyrir það ! litla plantan sem er við hliðina á henni, er það sama tegund eða?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Litla plantan við hliðina er að mér sýnist Anubias nana.
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

jújú, engar fréttir eru góðar fréttir hef ég heyrt. til að segja eitthvað þá var ég að hreinsa þörung áðan og blaðið brotnaði, og lítið brot sökk á botninn, og ég næ því ekki uppúr :S ég er hrædd um að skera mig eða að einhver fiskur kviðristi sig á þessu. en núna er þetta hrofið. helvítis vesen. en já, litlu fiskarnir, fiðrildaskilíðurnar og macmasteri parið var all over it, meðan "stóru" fiskarnir, spilurum, synspilurum, og fleiri í þeim dúr húkktu skíthræddir bakvið hitarann. frekar kómískt að horfa á þetta.

annars vil ég lýsa yfir frati á hendur dýragarðinum að vera ekki búin að opna þegar ég kom þangað áðan uppúr 10 leitið. mjög leiínlegt og þetta setur daginn minn alveg úr skorðium. kem með plöntu þaðan á eftir ef ég verð heppinn.


grænir flekkir eru ennþá á plöntunum, þ.e.a.s mjög dökk grænir, og eins og það sé eitthvað utan á plöntunum. reyndar er þetta bara ein planta sem er svona, en ég fíla það ekki, hún er falleg en gæti verið ótrúlega falleg.

kannast einhver við þetta.. núna?
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

jæja. eitthvað urðu örlög macmasteri kallsins undarleg. ég var orðin sannfærð um að ég hefði ryksugað hann upp og helt honum í klósettið og fór að sofa með sárt ennið. morgunin eftir var samt lík á floti í búrinu, svo ég ákvað, eftir mikla talningu að þarna væri macmasteri hundurinn grafinn. það bættust við tveir macmasteriar í búrið, og tvær stórar plöntur (myndir fljóóótlega)

ENNÞÁ ágerist græna mauki á laufblöðunum á plöntunni með stóru laufblöðin. mjög undarlegt og leiðinlegt. ég vil ENDILEGA aðstoð við þetta, þar sem þessi planta er í fullum vexti og þetta leggst alltaf á ný blöð. (kemur líka mynd fljótlega)
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

green terror lá dauður á botni búrsins í gær. einn af stærstu fiskum búrsins! mjög undarlegt. það var ekkert búið að borða hann þannig að hann virðist ekki hafa verið drepin.

undarlegt.
Post Reply