er einhver að selja black ghost eða discus

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
DjNova
Posts: 83
Joined: 04 May 2010, 18:25
Location: Mosfellsbær
Contact:

er einhver að selja black ghost eða discus

Post by DjNova »

vill bara anna hvora tegundina helst vill ég fá þá ódýra ekki hugsa um að ég kaupi black ghost meira enn 5000 af því að ég sá einn í dýragarðinum á fimm þúsund og discusarnir helst undir 7000 tek tilboðum líka besta boðið vinnur!!
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Bara forvitin en afhverju kaupir þú ekki bara discusana i gæludýraverslunini? :?
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
DjNova
Posts: 83
Joined: 04 May 2010, 18:25
Location: Mosfellsbær
Contact:

ok

Post by DjNova »

en hvað kosta þeir þar sem þeir kosta minnst?
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Nákvæmlega :) Hefur þú talað við Tjörva? Hann lummar oft á ódýrum tegundum af discum og getur pantað fyrir þig. :) Við sem eigum stóra mola og frjósöm pör erum bara ekki tilbúnir til að láta þessa gullmola fyrir sama verð og verslanir eru að selja ungfiska allavega tala ég fyrir minn munn og held að fleiri eigendur að stórum discum taki undir það.


Kv
ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ef þú ert heppinn geturu fundið LITLA diskusa á rétt undir 10.000kr. annars eru þeir um 10þ kr., ungfiskarnir þá.

En ég mæli með því alveg sérstaklega ef þú ert að fá þér diskusa að vera búinn að cycla búrið vel o.s.frv. ungir diskusar eru viðkvæmir fyrir slæmum vatnsgæðum og deyja oft upp úr næstum þurru. Ég hef aldrei átt diskusa sjálfur, einfaldlega vegna þess að ég tími ekki að eyða tugum þúsunda í eitthvað sem getur drepist fljótlega.
En engu síður hef ég lesið mér helling til um þá, svo þú getur sent mér ep ef þú hefur spurningar um diskusa eða einhverja aðra fiska.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Það er svo sem rétt sem Jakob skrifar hér en það er svo að littlir discar eru mjög viðkvæmir og þurfa regluleg vatnaskipti. Ég er búin að ala diska i nokkurn tima og hef komið upp seiðum sem eru orðin stórir i dag og ég verð að segja að þetta er ekki auðvelt en ef þú hefur áhuga og tima þá tekst þetta :)
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Jakob wrote:Ef þú ert heppinn geturu fundið LITLA diskusa á rétt undir 10.000kr. annars eru þeir um 10þ kr., ungfiskarnir þá.

En ég mæli með því alveg sérstaklega ef þú ert að fá þér diskusa að vera búinn að cycla búrið vel o.s.frv. ungir diskusar eru viðkvæmir fyrir slæmum vatnsgæðum og deyja oft upp úr næstum þurru. Ég hef aldrei átt diskusa sjálfur, einfaldlega vegna þess að ég tími ekki að eyða tugum þúsunda í eitthvað sem getur drepist fljótlega.
En engu síður hef ég lesið mér helling til um þá, svo þú getur sent mér ep ef þú hefur spurningar um diskusa eða einhverja aðra fiska.
Ég held það sé bara ágætt að hafa umræðurnar fyrir opnum tjöldum, þannig lærum við öll. Skil ekki hvað býr að baki þessu Jakob.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er ekkert sem býr að baki þessu nema einfaldlega það að ef hann vildi spyrja þá væri honum það velkomið. Í stað þess kannski að búa til milljón þræði fyrir litlar spurningar sem hægt er að svara í hvelli. :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
eikibj
Posts: 47
Joined: 10 Aug 2008, 17:22

discus

Post by eikibj »

Svavar hefur verið að selja Discus sem hann er að rækta ég fékk hjá honum fiska, það eru alltaf einhver afföll af litlum discus, varðandi vatnsskipti þá þarf að skipta um vatn í hverri viku það skiptir ekki máli hvað þeir eru stórir.
325L
Regnbogafiskar
Ancistrur ofl.
Post Reply