Ormur?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Ormur?

Post by Sibbi »

Ég fann áðan einhvern orm í einu búrinu.
Getur einhver tjáð mér hver þremillinn þetta er, og hvað ég eigi að gera.
Image
Image
Þetta er sprell lifandi og skríður hratt yfir.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Leech gæti ég trúað. Ég mundi fjarlægja kvikindið fyrr en seinna.
Komdu þessu samt í krukku, ég væri til í að skoða þetta nánar.
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

Vargur wrote:Leech gæti ég trúað. Ég mundi fjarlægja kvikindið fyrr en seinna.
Komdu þessu samt í krukku, ég væri til í að skoða þetta nánar.
Ég gerði það strax kappi, setti í plastbox með loki.
Þetta virðist getað skroppið saman í næstum því smá pungt, en er ca. 1 til 1 1/2 þegar hann skríður um, eða ríkur um ætti maður að segja, broslega mikil ferð á svona kvikindi, og ef hann nær taki á einhverju hrjúfu, eða kanti er vonlaust næstum því að hrista hann af, eða lausan.

Maður er skelfingu lostinn, og vaktar búrið sem ég fann hann í, eins og þar geti leinst stórhættulegar óværur, já ef ekki bara geimverur :( :sjúkrabíll:

Þetta er sama búr og ég er að finna óþekktu sniglana í> ht[url]tp://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=10712[/url]
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

Verst er að ég skuli ekki vera með betri linsu fyrir svona nærmyndatöku:
Image
Image
Image
Image
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

Sibbi wrote:Verst er að ég skuli ekki vera með betri linsu fyrir svona nærmyndatöku:
Image
Image
Image
Image
Búrið:
Image
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi ekki kippa mér mikið upp við þetta. Það koma oft einhverjar pöddur með gróðri og fleiru og lítið hægt að gera í því. Fiskar éta svona dýr venjulega.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

keli wrote:Ég myndi ekki kippa mér mikið upp við þetta. Það koma oft einhverjar pöddur með gróðri og fleiru og lítið hægt að gera í því. Fiskar éta svona dýr venjulega.
Ég er að sjálfsögðu ánægður að "heyra" það, ég bara man ekki eftir að hafa fengið hvorki pöddur né auka snigla áður, en þess ber líka að geta, að ég er búinn að vera að auka gróður og slíkt að undanförnu, svo þetta er kannski bara "eðlilegt".

Svo er að læðast að mér að sökin sé kanski eitthvað því að kenna að ég skipti um botnlag í þessu búri fyrir 2 mánuðum eða svo, og setti fjöruskeljasand í, þóttist þvo hann mjög vel, en hver veit.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mér finnst líklegra að þetta hafi bara komið með plöntunum. Ég hef séð ótal svona pöddur, orma og snigla í búrum hjá mér og það er í raun lítið við því að gera, þetta fylgir bara. Það er alltaf eitthvað svona í öllum fiskabúrum og nær ómögulegt að losa sig alveg við það, nema hugsanlega að sleppa því að hafa plöntur og möl/sand og vera með uv ljós á búrinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Post by Sibbi »

Alsekki ósennilegt að þetta hafi komið með plöntum, er einmitt nýlega búinn að setja plöntur í búrið, tvisvar meira að segja, á um tveggja vikna tímabili.

Kvikindið virðist dauður núna, get allavega ekki séð betur.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Post Reply