Þörungur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
mahalo
Posts: 28
Joined: 27 Jun 2008, 14:28

Þörungur

Post by mahalo »

Ég er að byrja aftur í fiskum eftir margra ára frí, er búin að fá mér 90L búr og ekki búin að ákveða hvaða fiskar verða í því en langaði að spurja ykkur fyrst, ég var alltaf með 54L búr þegar ég var yngri sem var bara að kafna í þörungi - hvað getur maður gert til að halda þörungnum í skefjum svo búrið verði ekki bara grænt og ljótt ?

Takk !
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Hér er ágætis síða um þörunga tegundir og ráð við þeim.

http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=6225
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nr 1 2 og 3: ekki láta sól skína á búrið og hafðu tímastilli á ljósunum þannig að þau lýsi ekki lengur en 8-10 tíma á sólahring.
-Andri
695-4495

Image
jon86
Posts: 59
Joined: 28 Mar 2010, 23:52

Post by jon86 »

Rauðþörungur er það sem hefur yfirleitt verið að hrjá mín búr, nafnið er þó mjög villandi og virkar hann grænleitur þegar hann sest á gler, en hann getur einnig gert vatnið gulleitt og gruggut. Lausnir við honum geta verið : góð vatnaskipti, minna ljós, minni matargjöf, og ef þú átt C02 þá myndi ég setja tvöfaldann ráðlagðan skamt af því í búrið. C02 eða koldíoxíð hefur virkað best hjá mér (3 búr búin að haldast fín í langan tíma eftir að ég byrjaði að bæta honum útí)
190L Juwel Trigon Samfélags
54L Rena Gubby búr
54L Rena Endler/Kribba seyðabúr
20L Hexagon Seyða-Rækjubúr
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

mahalo...ætlarðu að hafa þetta gróður búr?
mahalo
Posts: 28
Joined: 27 Jun 2008, 14:28

Post by mahalo »

prien wrote:mahalo...ætlarðu að hafa þetta gróður búr?
Nei það verða einhverjir smáfiskar í því, sverðdragar og svoleiðis :)
Post Reply