Vandamál með gullfiska!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Vandamál með gullfiska!

Post by Geir94 »

hæ, ég er með 5 gullfiska 3 eru slæðusporðar og 2 "venjulega" en þessir 3 slæðusporðar eru ALLTAF að fljóta á yfirborðið og ná ekki að synda venjulega þeir fljóta bara alltaf upp og á hvolf!
Vitið þið hvað gæti verið að? því að þetta er BARA að ské fyrir slæðusporðana en ekki hina.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

gæti verið fóðrinu að kenna..
hvernig fóður ertu að gefa þeim og hvað mikið?
Hvað eru þeir í stóru búri?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Post by Geir94 »

búrin er um 120 lítra ég gef þeim sera goldy.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

flögur eða kúlur, sekkur eða flýtur?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Post by Geir94 »

Flögur sem fljóta
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Það er betra að gefa gullfiskum, mat sem sekkur, annars gleypa þeir of mikið loft.
Þeir eru með viðkvæma meltingu og þurfa góðan gullfiskamat.
Þeir eru gjarnir á að fá sundmagavandamál eða loft í sundmagan og þ.a.l þá fljóta þeir.
Fiskarnir gætu líka verið stíflaðir.
Gætir prófað að sleppa því að fóðra þá í fjóra daga til að láta þá hreinsa sig að innan.
Passaðu að gefa gullfiskunum ekki mikið að borða.
Þeir þurfa ekki mikið.
Sundmagavandamál er eitthvað tengt erfðum og offóðrun (líka slæmu matarræði)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Geir94
Posts: 14
Joined: 08 Jul 2008, 12:34

Post by Geir94 »

ok prófa að láta þá fá smá detox :lol: en er þetta þá ekki snýkjudýr eða neitt þannig? og hvernig matur sekkur þá? eru það þessar kúlur? og afhverju skeður þetta bara fyrir slæðusporðana?
Post Reply