Andri Pogo - hin búrin mín
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Lítið að marka stresslitina í salvini, sérstaklega með svona ljósan sand. Ég myndi persónulega giska á að þetta væri kerling
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Það borgar sig oft ekkert að vera að skjóta of fast á kyn á fiskum það hefur maður lært síðust 30 og eitthvað ár
ég hefði haldið að salvini gæti verið kerla en Trimac þekki ég ekki það vel þó ég hafi átt þetta eintak áður þá hef ég aldrei verið með fullorðið par en þannig fær maður alvöru reynslu og þarf þá ekki að giska í framtíðinni

www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
jæja ég kíkti til Guðmundar og fór glaður heim með nokkrar síkliður (tók meira að segja eina með sem ég er ekki hrifinn af)
Í 300L búrið bættust því við: 6 cintrinellum/labiatus, Aequidens diadema og Vieja synspilum (þrátt fyrir fallega liti mér finnst Viejur oft asnalegar í laginu)
Auðvitað voru fiskarnir svo myndaðir
Amphilophus 1, eini guli:
Amphilophus 2:
Amphilophus 3:
Amphilophus 4:
Amphilophus 5, flekkóttur:
Amphilophus 6:
Synspilum:
diadema vildi ekki láta mynda sig í lófanum...
Trimac að skoða nýju fiskana:
Aequidens diadema, svakalega fallegur:
Í 300L búrið bættust því við: 6 cintrinellum/labiatus, Aequidens diadema og Vieja synspilum (þrátt fyrir fallega liti mér finnst Viejur oft asnalegar í laginu)
Auðvitað voru fiskarnir svo myndaðir
Amphilophus 1, eini guli:
Amphilophus 2:
Amphilophus 3:
Amphilophus 4:
Amphilophus 5, flekkóttur:
Amphilophus 6:
Synspilum:
diadema vildi ekki láta mynda sig í lófanum...
Trimac að skoða nýju fiskana:
Aequidens diadema, svakalega fallegur:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
það gengur vel með síkliðurnar í 300L búrinu, þeir eru farnir að stækka og fá smá liti. Stærsti Midas-inn er farinn að stjórna búrinu, það er sá dökki sem er merktur Amphilophus 6 hér fyrir ofan.
þetta er hann, byrjaður að fá lóðréttu rákirnar:
sá flekkótti er flottur:
henti tveimur Jack Dempsey í búrið áðan, annar ætti að vera orðinn nógu stór en hinn er frekar tæpur, ætla að sjá hvernig það gengur.
Þetta er sá stærri:
þetta er hann, byrjaður að fá lóðréttu rákirnar:
sá flekkótti er flottur:
henti tveimur Jack Dempsey í búrið áðan, annar ætti að vera orðinn nógu stór en hinn er frekar tæpur, ætla að sjá hvernig það gengur.
Þetta er sá stærri:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Þeir voru allir eins brúnir þegar ég fékk þá en einn varð gulur fyrir löngu og þessi flekkótt er frekar nýbyrjaður að skifta um lit gæti endað gulur en vonandi kemur eitthvað annað afbrigði
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Þeir eru farnir að líta út eins og töffarar
Hlakka til að fá börnin aftur
Hlakka til að fá börnin aftur
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
skemmtileg heimasíða
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Jæja er ekki við hæfi að vekja upp þennan þráð í stað þess að gera nýjan
Ég var að taka herbergi í húsinu á leigu, sama herbergi og ég var með á síðasta ári og kemur fram hér aðeins fyrr í þræðinum.
Herbergið er hérna inní sameigninni, nokkrum skrefum frá íbúðinni.
Ég var með nokkur fiskabúr í því síðast, m.a. undir gróðurræktun en ég tók það á leigu af annari ástæðu núna, er að setja upp smíðaaðstöðu.
Ég hafði verið að íhuga að setja upp 1-2 fiskabúr í leiðinni, það er hvorki vatn né niðurfall í herberginu, vatnsskiptin ekkert rosalega skemmtileg og því ekki á óskalistanum að sjá um helling af búrum þarna.
Þetta er þó ekkert svakalegt mál, næ alveg slöngu inn í herbergið til að tappa af og renna í búrin
Það munar svo ekkert rosalega í tíma að þrífa 2 eða 6 búr þarna, bara aðallega að koma sér í það.
Tók smá skyndiákvörðun að taka nokkur búr sem félagi minn var að losa sig við, var búinn að útiloka það en ákvað að slá til fyrst ég er með pláss og fékk fínan díl.
Þetta eru 4x 170L búr & ~100L+ sumpur.
Stefni á að hafa búrin þó sjálfstæð, s.s. ekki nota sumpinn en útiloka það þó ekki.
Er búinn að gera teikningu að rekka fyrir 3x170L búrin, sem eru tvískipt og gera því 6x85L búr.
Ef ég myndi nota sumpinn væri bara pláss fyrir 2x170L búr og því er ég að spá í að sleppa honum + þá slepp ég við vinnu og pening sem færi í að tengja þau saman.
Kem svo með myndir af þessu þegar þetta fer í gang og eitthvað fer að gerast.

Kominn með efni og byrjaður að skella saman rekkanum, ákvað að vera svolítið raunsær á fjölda búra sem ég mun nenna að hugsa um og ætla bara að nota tvö tvískipt búr og verð því með 4x85L búr í herberginu.
Á svo eftir að ákveða ljósa- og dælubúnað og hvort ég klæði rekkann eða ekki.
Ætli ég selji svo ekki bara afgangsbúrin og sumpinn áfram á næstu dögum.
Skelli inn myndum þegar rekkinn er kominn upp og í gang.
Á svo eftir að ákveða ljósa- og dælubúnað og hvort ég klæði rekkann eða ekki.
Ætli ég selji svo ekki bara afgangsbúrin og sumpinn áfram á næstu dögum.
Skelli inn myndum þegar rekkinn er kominn upp og í gang.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Andri Pogo - hin búrin mín
Jæja nú er rekkinn í hobbyherberginu mínu búinn að vera uppi í mánuð og það gengur bara hægt en ágætlega
Svona lítur hann út (mánaðargömul mynd):
Til að byrja með er ég með loftdæluknúin filterbox í öllum búrum, keyrð af Tetratec 400 dælu.
Búr 1: Jack Dempsey par (sem er til sölu)
Búr 2: 20-30 Black belt seiði, 7 vikna gömul
Búr 3: Tómt, tilbúið fyrir nokkur kribbaseiði niðrí vinnu sem ég eftir að taka heim (eða e-ð annað spennandi)
Búr 4: 2-300+ Black belt seiði, 2 vikna gömul
Eldri Black belt seiðin fyrir mánuði:
Í dag:
og nýjustu seiðin, ég hætti að telja í 300 þegar ég var að færa þau í búrið, finnst eins og þau hafi fækkað eitthvað samt síðan:

400L Ameríkusíkliður o.fl.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Andri Pogo - hin búrin mín
Kíkti við í Dýragarðinum áðan og tók með mér einn flottan puffer (Takifugu ocellatus), án þess að vita mjög mikið um hann annað en að hann verður ekki stór
Sá hann éta um daginn og varð alveg heillaður, svakalegur kraftur í svona smáum fisk!
Las svo aðeins um hann og þetta eru víst ekki tropical fiskar, ættu s.s. ekki að vera í heitara vatni en 20°.
Svo á að vera mjög erfitt að halda þeim á lífi lengi, aðallega er það þó hitastigið sem er að drepa þá.
Þetta er fiskur sem er í brackish og sjó, fer þó yfir í ferskvatn til að hrygna og seiðin renna svo rólega niður í átt að sjónum meðan þau stækka.
Búrfiskar af þessari tegund eru veiddir villtir sem ungfiskar, í ferskvatni, og því yfirleitt seldir sem ferskvatnsfiskar.
Þeir eiga að geta verið einhverja mánuði í fersku vatni en ég þarf svo að fara að skella salti útí hjá honum til að hann endist sem best.
Það verður skemmtilegt verkefni að sjá hvort ég haldi lífi í honum, lét hann í annað neðra búrið í rekkanum og tók hitarann úr sambandi, vatnið var í ~22° án hitara minnir mig, ætla að minnka aðeins hitann í herberginu og sjá hvernig hitinn verður.
Hefur einhver hér reynslu af því að halda brackish búri?
Mér var sagt að gróft kötlusalt væri nóg til að salta vatnið en þyrfti ég ekki að redda mér saltmæli til að passa að ég haldi saltmagninu réttu?
Einhver sem hefur átt þessa tegund?
Myndir fljótlega..

Ég var einmitt að horfa á þessa puffera þegar þeir komu en sleppti því að taka þá útaf vandræðunum við að halda þeim lifandi. Brackish er lítið mál, þú þarft bara saltmæli sem getur mælt svona litla seltu (sykurflotvog sem er notuð í vín/bjórgerð myndi duga). Þú getur notað kötlusalt eða sjósalt - ég er ekki viss hvort sé "betra".
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Andri Pogo - hin búrin mín
gengur ágætlega með pufferinn, hann fær stundum seiði að éta en annars bara rækju... er alveg til í litla snigla ef einhver á
Er annars að spá í að færa hann í 30L búr sem ég er með í vinnunni, hann er svo lítill að það ætti alveg að ganga.
Er með kribbapar og venusarfiska í búrinu núna og finnst það ekkert ofur áhugavert en krakkarnir hafa alveg gaman að sjá seiðin þegar þau hrygna...
Datt annars í hug að skella inn símamyndum af því búri að gamni.
Búrið er inni á skrifstofu hjá mér, inn af smíðastofunni:
skrifstofan er þó alltaf lokuð og off-limits fyrir nemendur nema ef þau vilja kíkja á búrið... en eins og sést á myndinni er lítill gluggi inn í smíðastofu og datt mér því í hug að skella einhverju undir búrið og setja búrið í gluggann þannig að það væri svona eins og innbyggt í vegginn. Ekki getur búrið verið í stofunni sjálfri með góðu móti af hætti við að það brotni.
hérna er umræddur gluggi, séð úr kennslustofunni:
og búrið komið upp á standinn, líka gott við þetta er að það er ekki hægt að banka í búrið sjálft:
gaman að þessu

Flott hjá þér.
Gott fyrirkomulag að ekki sé hægt að banka í búrið, því það er nú það sem mörgum krakkanum finnst bara allveg bráðnauðsynlegt, svona eins og að athuga hvort einhver sé heima

500l - 720l.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Andri Pogo - hin búrin mín
Grunnskóla í Rvk... kem svo með nýjar myndir þegar pufferinn er kominn í búrið