

Jack Dempsey par. 5000kr

Svaaaaakalega flottur Óskar. 4000kr
Ath: er orðinn töluvert stærri og breiðari en á þessari mynd. Tek nýja mynd fljótlega:

Svo er það flotti Green Terror karlinn... hann var tekinn í gegn af Black belt parinu fyrir ca mánuði og fékk stórt sár á ennið sem er þó að gróa núna. Ég veit þó ekki enn hvort hann verði "as good as new" en það á bara eftir að koma í ljós.
Hann fæst á því á litlar 2000kr á meðan það er óljóst (þótt hann sé mjög hress og langt síðan hann var tekinn í gegn tek ég þó enga ábyrgð á honum ef honum skildi versna)
Reyni að taka nýja mynd sem sýnir sárið fljótlega.

Svo er ég með flott Texas par sem ég mun líklega selja en ekki alveg strax.
Kerlan var tekin svakalega í gegn af karlinum þegar ég prófaði að setja þau í (greinilega of lítið) sérbúr.
Hún er núna ein að jafna sig en karlinn í fullu fjöri í stóra búrinu, í hrygningarlitum.
Þau fara á 5000kr þegar kerla hefur jafnað sig. Karlinn er búinn að stækka þónokkuð frá því á myndunum:


Svo er það djásnið í búrinu, svakalega flottur Jaguar karl. Hann var hálf horaður og aumingjalegur þegar ég fékk hann en hann er búinn að stækka vel og er kominn með flotta liti.
Er ekki alveg viss með verð á honum en hann fer ekki fyrr en allir aðrir fiskar eru farnir úr búrinu, það er séns að ég haldi honum eftir, fer eftir því hvaða fiska ég mun kaupa í búrið.
Athugið að myndin er 2.mánaðar gömul:
