Dauður gúbbí

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
throstur
Posts: 6
Joined: 09 Jan 2011, 23:13

Dauður gúbbí

Post by throstur »

Ég lennti í því í nótt að einn gúbbífiskanna hjá mér drapst og svo hinn í hádeginu í dag

Var að pæla hvað gæti ollið því, þeir héldu sig alveg frá því ég fékk þá alltaf efst í vatninu

Og í gærkvöldi þegar ég gaf þeim og hinum fiskunum að borða þá voru þeir alveg óðir í matinn en hinir svona bara eðlilegir og fóru annarslagið upp að fá sér.


Væri gaman að fá að vita einhvern fróðleik um þetta ef einhver hefur.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Dauður gúbbí

Post by Elma »

hvað eru þeir í stóru búri og hvernig eru vatnsskiptin hjá þér.
einnig, hvaða aðrir fiskar eru með þeim í búrinu?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
throstur
Posts: 6
Joined: 09 Jan 2011, 23:13

Re: Dauður gúbbí

Post by throstur »

Elma wrote:hvað eru þeir í stóru búri og hvernig eru vatnsskiptin hjá þér.
einnig, hvaða aðrir fiskar eru með þeim í búrinu?
Sko ég var bara að byrja með fiska á þriðjudaginn, og það er par af sverðdragara, ein ryksuga og einn gullfiskur
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Dauður gúbbí

Post by Elma »

ertu nokkuð búin að gefa mikið á þessum tveim dögum?
Hvað er búrið margir lítrar?
Kannski voru gúbbarnir bara slappir þegar þú fékkst þá.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
throstur
Posts: 6
Joined: 09 Jan 2011, 23:13

Re: Dauður gúbbí

Post by throstur »

Elma wrote:ertu nokkuð búin að gefa mikið á þessum tveim dögum?
Hvað er búrið margir lítrar?
Kannski voru gúbbarnir bara slappir þegar þú fékkst þá.
Búrið er 54L, ég bjóst svo sem við því að þeir hafi bara verið slappir sko, langaði bara að vita hvort einhvern sérfræðingurinn hér hefði einhverja kenningu um þetta. Var aðalega að pæla hvort það segði mér eitthvað að þeir héldu sig alltaf efst uppi í vatninu. Eða er það þannig sem gúbbí hagar sér?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Dauður gúbbí

Post by Elma »

ef þeir hanga bara hreyfingarlausir við yfirborðið og gera ekki neitt, þá er það óeðlilegt.
Þeir eiga að synda út um allt.
Kannski var vatnið í pokanum kaldara en vatnið í búrinu (eða öfugt) og fiskanir fengu sjokk þegar þeir fóru í búrið.
En það er hægt að giska endalaust hvað gæti hafa verið að :-)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
throstur
Posts: 6
Joined: 09 Jan 2011, 23:13

Re: Dauður gúbbí

Post by throstur »

jájá.. enda skiptir þetta engu máli.. var ekkert að fíla þá sérstaklega... held þeir hafi bara verið þunglyndir því mér fannst þeir leiðinlegir.. hehe.. ég er að spá í að fá mér molly par í staðin..
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Dauður gúbbí

Post by Elma »

gúbbar geta reyndar verið mjög skemmtilegir og mjög fallegir fiskar.
Mér finnst mjög gaman að taka myndir af þeim.
Það gæti verið að þeir hafi verið hræddir við gullfiskinn.
Gullfiskurinn á eftir að éta flest öll seiði sem koma.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply