Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Mía
Posts: 12
Joined: 26 Aug 2010, 11:21

Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by Mía »

Halló. Við erum nýbúin að fá okkur 260l búr. Það er tómt eins og er. Okkur langar helst í frekar litla fiska. Hverju mynduð þið mæla með? :D
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by Andri Pogo »

50-100 cardinal tetrur, 4 skala og svo eitthvað meira með í bland kannski, t.d. ancistrur, dvergsíkliður... :mrgreen:
-Andri
695-4495

Image
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by pjakkur007 »

Ef ég væri að fara setja upp 260 L búr núna með smáfiskum myndi ég hafa:

8 x Cardinal tetrur
6 x Lemmon tetrur
6 x rummynose tetra
6 x Sebra danio
4 x SAE
5 x corydoras
4 x Ancirsturs

Ásamt gróðri eind og anubias, Java fern,vanilsneria og eitthverju fleiru
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by Elma »

þú getur haft nokkrar tetrutegundir í búrinu, sem væri mjög flott!
t.d sítrónutetrur, demantatetrur, neon og cardinal, rummy nose, glow light..
endler guppy (sem er lítill gotfiskur, karlfiskarnir eru mjög flottir og verða aðeins um 2-2.5cm)
á botninum geta verið corydoras, ancistrur..
Svo ef þú vilt eitthvað eins stærra til að vera með tetrunum,
þá eru regnboga fiskar alveg tilvalið.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by Andri Pogo »

ekkert gaman að hafa svona fáar tetrur í svo stóru búri :)

hérna er eitt 280L sem ég var með:
Image

á þessari mynd eru 10 lemon tetrur og 50 kardinálar, bætti svo minnir mig við enn fleiri tetrum.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
pjakkur007
Posts: 311
Joined: 02 Feb 2010, 21:53
Location: Tálknafirði
Contact:

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by pjakkur007 »

eftir því sem búrið er lengra geturu vissulega haft fleiri tetrur í því og ég er allveg sammála Andra að fleiri fiskar eru flottari ef þú ert með eitthverja stærri fiska með sem halda þeim í hóp. en ef búrið er tiltölulega stutt borgar sig ekki að hafa fiskana of marga
User avatar
Mía
Posts: 12
Joined: 26 Aug 2010, 11:21

Re: Uppástungur að fiskum í 260l búr?

Post by Mía »

Takk fyrir allar uppástungurnar. :) Þetta er Juwel Vision 260l. Við erum byrjendur og vitum ósköp lítið ennþá, en hefur lengi langað í fiskabúr.
Post Reply