Að flytja með dýrin út
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Að flytja með dýrin út
Er það mikið vesen?
Er það hægt?
Í þessu tilviki er ég bara að tala um 54L búr með einum humar. Er það mikið vesen að gera það? Kostar það mikið?
Hefur einhver reynslu af þessu?
Er það hægt?
Í þessu tilviki er ég bara að tala um 54L búr með einum humar. Er það mikið vesen að gera það? Kostar það mikið?
Hefur einhver reynslu af þessu?
Re: Að flytja með dýrin út
út... til útlanda?
Ég myndi halda að það væri vesen.
Ég myndi halda að það væri vesen.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Að flytja með dýrin út
myndi sleppa því ef þú ert að fara til útlanda bara að fá sér nýtt
sammála kela að það yrði vesen
sammála kela að það yrði vesen
400l búr sem á eftir að verða monster búr og
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
búin að breyta nafninu í Ási úr red
Kv.Ásbjörn
Re: Að flytja með dýrin út
Við erum að tala um einn humar bara. Mig og kærustunni þykir vænt um krílið enda frábært eintak. Flottur legokastalinn sem hann býr í líka og svo auðvelt og ódýrt fyrir fátæka námsmenn að hugsa um.
Er það vesen útaf innflutningsleyfi eða bara fyrir dýrið sjálft?
Er það vesen útaf innflutningsleyfi eða bara fyrir dýrið sjálft?
Re: Að flytja með dýrin út
Fer eftir því hvert þú ert að fara, en aðal vandamálið er að þú getur ekki tekið hann í handfarangur (mátt ekki vera með vökva). Þarft því að pakka honum í einhverjar umbúðir. En umbúðirnar verða að vera einangraðar og líklega með hitapakka til að vatnið snarkólni ekki. Þetta verður dýrt, og ekki víst að humarinn meiki ferðalagið. Búrið er líklega vitleysa að flytja út, nema þú sért hvorteðer að fara með gám eða eitthvað svoleiðis.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Að flytja með dýrin út
Þetta eru búflutningar að nokkru leyti þannig að ég gæti alveg tekið búrið með. Það er svo sem ekki vandamálið hérna. Bara aðallega dýrið.
Hvernig eru þau flutt inn hingað til landsins?
Hvernig eru þau flutt inn hingað til landsins?
Re: Að flytja með dýrin út
Hvaða tegund af humri er þetta ?
Re: Að flytja með dýrin út
Þetta er Australian Red Clawe Crayfish.
Hann á kannski eftir eina eða tvær hamskiptingar. Svipað stór og lófinn eins og er
Hann á kannski eftir eina eða tvær hamskiptingar. Svipað stór og lófinn eins og er
Re: Að flytja með dýrin út
Snædal. Hvert ertu að flitja? Get bent þér á það að hérna í DK er mjög ódír búr og allt Það sem þig listir í það.. verslaði mitt 54L búr á cirka 400 DKr með dælu hitara fóðri og mæli á...
Re: Að flytja með dýrin út
Er að fara til Álaborga í haust í skóla.
Ég er ekki að segja að ég sé að fara með dýrið út, bara velta fyrir mér vesenið á bakvið þetta.
Ég er ekki að segja að ég sé að fara með dýrið út, bara velta fyrir mér vesenið á bakvið þetta.
Re: Að flytja með dýrin út
Held að þetta sé flutt inn í einangruðum frauðboxum, í poka... svo eru hitapakkar þar inni í til að gefa frá sér hita. Svona hitapakkar eru seldir í veiðihorninu & sportbúðinni. Mjög sniðugt dót, járn og einhver önnur efnasambönd sem oxast í snertingu við súrefni og mynda varma
Re: Að flytja með dýrin út
getur líka flutt hann sjálfur út með norrænu ef þú ferð með bílinn þinn líka. Held að það sé minna eftirlit svoleiðis og minna vesen...
Re: Að flytja með dýrin út
Nei ég tek ekki bílinn út. Of góðar almenningsamgöngur þarna úti og allt of dýrt að reka bíl. 180% skattálagning á skráningargjald bílsins o.s.frv. Get rekið hann auðveldlega eins og er þar sem hann er fullborgaður á engum lánum og í toppstandi þrátt fyrir aldur. Tek frekar peningin og sel pabba hann.
Re: Að flytja með dýrin út
Þú getur fengið gott verð fyrir humarinn hjá fiskikónginum Joke