Ég leyfði börnum mínum að stinga puttunum í búrið (láta fiskana kyssa puttana) og var ekkert voða vel að fylgjast með þeim. Svo þegar þau eru búin þá sé ég að dóttir mín hefur ákveðið að deila kexinu sínu með fiskunum. Ég fór í snarhasti að reyna fiska það upp með háfi en náði því ekki öllu því að það var orðið vel blautt og molnaði því í sundur. Nú eru fiskarnir að hakka í sig því sem ég náði ekki. Þarf ég að hafa áhyggjur af þessu? Þetta eru gúbbí, danio, kardinálar og fl. smáfiskar ásamt rækjum. Kexið var maryland súkkulaðibitakex.
Fáránlegt vandamál.
Kex í fiskabúri.
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Kex í fiskabúri.
AAAlgjört drama !
Re: Kex í fiskabúri.
Smá kex ætti ekki að saka.
Re: Kex í fiskabúri.
Þú kemst amk að því fljótlega
Ég held að þetta sé ekkert vandamál.
Ég held að þetta sé ekkert vandamál.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net