Óska eftir síkliðum og ryksugum gegn vægu gjaldi :-)

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Palli10
Posts: 6
Joined: 22 Mar 2011, 14:15

Óska eftir síkliðum og ryksugum gegn vægu gjaldi :-)

Post by Palli10 »

Er að starta fiskabúrinu mínu aftur eftir 6 ára hlé. Hafði hugsað mér að setja síkliður í það aftur og slatta af ryksugum.

Eru einhverjir hér sem eru að losa sig við flotta fiska gegn vægu gjaldi? Mega vera seiði eða stálpaðari fiskar.

kv
User avatar
Guðjón B
Posts: 1510
Joined: 13 Mar 2009, 13:59
Location: Kópavogur
Contact:

Re: Óska eftir síkliðum og ryksugum gegn vægu gjaldi :-)

Post by Guðjón B »

Ertu búinn að skoða convict-parið sem er til sölu hérna?
Kv. Guðjón Bergmann
180L
54 L
Palli10
Posts: 6
Joined: 22 Mar 2011, 14:15

Re: Óska eftir síkliðum og ryksugum gegn vægu gjaldi :-)

Post by Palli10 »

Sælir
Heyrðu var með convict síðast þegar ég átti búr og það eru nú ágætis fiskar fyrir utan hvað þeir fjölga sér gríðarlega, þeir eigna sér alveg búrið á smá tíma :-)
svo ég hafði hugsað mér að sleppa þeim í þetta skiptið.

En þakka kærlega fyrir ábendinguna.

Ég er að fjárfesta í nokkrum Yellow lab núna um helgina en ætlaði að kanna hvort ég fengi fleiri í sömu ferð ef einhverjir væru til í að losa sig við flotta fiska. :-)

Ég fyllti síðast búrið af allskonar fiskum en ætla að takmarka það eitthvað í þetta skiptið við fáa en flotta fiska.

kv.
Post Reply