Útbrot

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Útbrot

Post by Ásta »

Ég sá áðan að á stóru Frontósunum eru einhver útbrot, ekki ólíkt og rauðir hundar.
Í byrjun tók ég eftir einhverjum bletti á sporði en nú hafa þeir aukist, færst yfir á ugga og sprungið út eins og hlaupabóla. Ég hef tekið eftir einni bólu í "andliti", annars er allt á sporði og ugga.
Mér dettur helst í hug sníkjudýr en ætla að reyna að finna eitthvað um þetta.
Ef einhver getur hjálpað mér á meðan þigg ég það.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

ég kannast við þetta
fyrir 2 vikum fékk einn fiskur í 500 lítra búrinu mínu þetta, viku seinna var þetta horfið. Vieja fiskarnir hjá mér eru þeir einu sem fá þetta
Nú eru flestir Vieja fiskarnir í 400 lítra búrinu með þetta, ég ætla bara að vera rólegur en ef þetta er að stækka þá mundi ég persónulega gera eitthvað í málinu
Gangi þér vel
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Kom þetta "out of nowhere" eða varstu að bæta nýjum fiskum í búrið þegar þetta kom?
Ég setti svolítið salt í búrið bara til að gera eitthvað :oops:
Hef ekki orðið vör við þetta á öðrum frontosum -so far- og vona að það sleppi. Það virðist heldur enginn óróleiki hrjá þær, kláði eða neitt slíkt.

Guðjón, þú lætur mig kannski vita ef þetta á eftir að valda einhverjum vandræðum hjá þér.
Þangað til verð ég svona nett róleg.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Þetta kom uppúr þurru, gæti verið eitthvað í vatninu fyrst að þetta hefur komið í tvö búr á stuttum tíma
Þetta þarf ekki einu sinni að vera sami hluturinn eins og hjá þér, þetta virðist ekkert trufla þá
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ásta, hvernig væri nú að kíkja í sjúkdóma bókina þína fínu og finna úr þessu ?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Úff, þessi sjúkdómabók er svo rosalega ýtarleg að mig sundlar.
Kannski ég skelli mér í það á meðan ég bíð eftir þvottavélinni.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Post Reply