Búrið mitt 120lítra myndir

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Búrið mitt 120lítra myndir

Post by halldorn »

íbúalisti
2x Kribbar(par)
2x Skalar
2x Bláhákarlar
6x Zebra Danio
7x Cardinal
1x SAE
1x Corydoras
2x Ankistra
og síðast og ekki síst 1x Gúbbí

Ég hugsaði Cardinal og gúbbý sem mat fyrir kribbana en kribbinn er bara búinn með þrjú stykki.
Veit ekki alveg afhverju ég endaði með bláhákarlana, þeir eru ekkert svo spennandi fiskar nema þeir séu bara ekki að njóta sín hjá mér.

Myndir

Image

Image

Image

Image

Image

Image




Kv. Halldór Örn
Last edited by halldorn on 05 Apr 2011, 22:10, edited 1 time in total.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Re: Búrið mitt 120lítra

Post by Agnes Helga »

Kribbi er varla ekki svo stór síklíða að hún sé að éta gúbbí og cardinal tetrur? Telst sem dvergsíklíða eiginlega eða er svona á mörkunum, allavega hef ég verið með þá í samfélagsbúrum án allra vandræða. En þeir hafa aldrei étið hjá mér cardinála eða neon en þeir geta verið svolítið að böggast í hinum fiskunum sérstaklega þegar þeir eru í hrygningarhugleiðingum.

Hlakka til að sjá myndir
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Re: Búrið mitt 120lítra

Post by halldorn »

Agnes Helga wrote:Kribbi er varla ekki svo stór síklíða að hún sé að éta gúbbí og cardinal tetrur? Telst sem dvergsíklíða eiginlega eða er svona á mörkunum, allavega hef ég verið með þá í samfélagsbúrum án allra vandræða. En þeir hafa aldrei étið hjá mér cardinála eða neon en þeir geta verið svolítið að böggast í hinum fiskunum sérstaklega þegar þeir eru í hrygningarhugleiðingum.

Hlakka til að sjá myndir
kribbinn hjá mér er frekar stór ég hef séð hann drepa tvær af þessum cardinal tetrum svo er hann á góðri leið með að éta corydoras búinn að bíta af honum munninn, er bara að sjá hvort hann hafi það af.

Málið er að hann borðar voða lítið af þurrmat fær sér bara cardinal þegar hann er svangur eða eitthvað...

ég náði ekki mynd af kerlingunni hún er bara inní helli spikfeit
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by Elma »

Það er ólíklegt að kribbi borði cardinala.
hann er bara að drepa þá, Kribbar einka sér svæði og vilja halda fiskum frá sínu svæði.
Svo eftir að hann drepur einhvern þá er ekki ólíklegt að hann eða aðrir fiskar
borði hræið.
Það er frekar níðingslegt að láta greyið corydorasinn vera enn þarna í búrinu
og með þessa áverka sem hann er með.
Hann á örugglega eftir að fá að finna meira fyrir því frá kribbanum
og drepast á endanum.
Það er að segja ef hann drepst ekki af þessum áverkum sem hann er með nú þegar.
Coryar eiga líka að vera fleiri en fimm saman og sumar tegundir jafnvel fleiri en 10 saman
því að þeir eru hópfiskar. (Social fishes)
Kribbar og corydoras eiga yfirleitt ekki saman, þar sem coryinn er botnfiskur
og kribbinn helgar sér svæði á botninum og vill ekki hafa aðra fiska þar í kring á sínu svæði.
Kribbarnir eru líklega að undirbúa hrygningu og verða því enn árásagjarnari á búrfélaga sína.

kribbinn mun taka þurrmatinn, bara gefðu því tíma, hann borðar þegar hann er svangur.
Myndi taka Coryinn og setja hann í annað búr, ekkert gaman að því að sjá
fiskana sína stressaða og alla í sárum eftir búrfélagana, eða dauða.

Alltaf gott að lesa sér til um hvaða fiskar passa saman áður en maður fær sér þá.
(og hvaða búrstærð og hvaða umhverfi hentar hverri tegund svo fiskarnir séu sáttir og líði
vel í umhverfi sínu)
:)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by halldorn »

já hann meikar það alveg þetta er í annað sinn sem hann er svona vonandi að hann læri bara að halda sig frá kribbanum
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by halldorn »

þetta er líka eflaust útafþví að kribbakerlingin hrygndi í gær eftir, 24 tímum eftir að hún kom i búrið :)
unnisiggi
Posts: 270
Joined: 14 Apr 2010, 21:49

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by unnisiggi »

fiskar eru ekki með rökhugsun hann mun ekki læra af þessu !!! óþarfi að vera að pinta dýr að ástæðalausu
1100L malawi, 200L jinlong samfélagsbúr, 1000L í uppsetningu
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by halldorn »

unnisiggi wrote:fiskar eru ekki með rökhugsun hann mun ekki læra af þessu !!! óþarfi að vera að pinta dýr að ástæðalausu
pynta dýr, hann er nú bara að jafna sig.

Viltu ekki bara útrýma öllum dýrum sem éta og ráðast á önnur dýr, held að við ættum nú fá dýr eftir í dýraríkinu.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by Elma »

held að unnisiggi sé að meina, að af því að þetta er nú í annað skiptið sem þetta gerist,
er þá ekki kominn tími til að gera eitthvað í því?

við erum bara að reyna að hjálpa til :)
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
halldorn
Posts: 44
Joined: 20 Mar 2011, 20:01

Re: Búrið mitt 120lítra myndir

Post by halldorn »

Elma wrote:held að unnisiggi sé að meina, að af því að þetta er nú í annað skiptið sem þetta gerist,
er þá ekki kominn tími til að gera eitthvað í því?

við erum bara að reyna að hjálpa til :)
já ef ég myndi sjá ástæður til myndi ég auðvitað taka hann frá. En þar sem kribbinn er ekkert að spá í honum núna þá er þetta ekkert að angra hann, borðar vel og andar.
Post Reply