Ég held að ég sé í smá vandræðum með Ancistuna mína. Var að fá hana í dag og núna síðustu klukkutímana hefur hún verið í felum á bak við steina og neitar að fara þaðan. Er þetta kannski eðlilegt, svona miðað við að hún er mjög ung (lítil) og ný í búrinu? Það er eins og hún sé að drepast úr hræðslu greyið
Svo var ég að spá í með hraunið. Kallinn kom heim með rosalega flott hraun sem hann fann...já...út í hrauni en það er myglulykt af því :/
Ég fleygði því út á svalir út af lyktinni sem gaus svo sterk upp þegar ég þreif grjótið en var að spá hvort það mætti samt fara út í fiskabúrið? Myndi lyktin smita út frá sér? Eða er kannski bara "e-ð að" grjótinu?
Nokkrar spurningar um hraun og Ancistuna
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Re: Nokkrar spurningar um hraun og Ancistuna
Ancistrur fela sig yfirleitt alltaf sérstaklega þær litlu svo það er eðlilegt þær eru meira á ferðinni á nóttunni, ég er með soldið af hrauni í stóra búrinu mínu og það hefur gengið nokkuð vel upp bara þrífa það vel áður en þú setur það í, lyktin er líka eðlileg, það var mosi á einum hraunmolanum hjá mér og fiskarnir voru alveg vitlausir í að borða hann og varð ekki meint af. Passaðu þig bara á að nota ekki nein efni til að þrífa grjótið bara vatn.
---------------------------
530 L síklíðu búr.
200 L þrískipt uppeldisbúr.
130 L Gotfiskabúr.
130 L froskabúr.
4 X 200 L Rekki.
530 L síklíðu búr.
200 L þrískipt uppeldisbúr.
130 L Gotfiskabúr.
130 L froskabúr.
4 X 200 L Rekki.
Re: Nokkrar spurningar um hraun og Ancistuna
Ég skolaði grjótið bara í vatni og svo uppúr suðuvatni, svona til að tryggja það að drepa allt óæskilegt Vona að það hafi tekist.
Fyrst myglulyktin er eðlileg þá er bara um að gera að skutla því í búrið
Flott að heyra með Ancistuna. Var farin að hafa smá áhyggjur af litla krílinu þarna. Alveg sama hvað ég "potaði" í hana þá var ekki séns að hún fari af felustaðnum en hún er búin að finna sér nýjan eftir nóttina
Takk kærlega fyrir svarið
Fyrst myglulyktin er eðlileg þá er bara um að gera að skutla því í búrið
Flott að heyra með Ancistuna. Var farin að hafa smá áhyggjur af litla krílinu þarna. Alveg sama hvað ég "potaði" í hana þá var ekki séns að hún fari af felustaðnum en hún er búin að finna sér nýjan eftir nóttina
Takk kærlega fyrir svarið