Hæ,
ég er með silfurlitað Akva-stabil búr til sölu. Það er 250 lítra, málin eru 100x50x50 cm. Á búrinu er lok og undir því er skápur með silfur hurðum.

Það var keypt nýtt 2008, sett upp og ekki hreyft síðan og lítur mjög vel út. Engin börn eða neitt að til að rispa

Til viðmiðunar þá kostar þetta nýtt:
Búr: 41.900 kr.
Lok: 44.100 kr.
Skápur (án hurða) 52.600 kr.
--------------------------
Samtals nýtt: 138.600 Verð fengin héðan. Mitt verð: 90.000 --lækkað--> 80.000 --lækkað--> 70.000
Einnig til sölu eru tvær Eheim dælur.
Eheim Professional II 2026 er önnur. Hún er fyrir búr allt að 350 lítra.

Hér er meiri upplýsingar.. Vel með farin og flott dæla. Verð nýtt: ??? Mitt verð: 20.000.
Svo er
Eheim Professional 2227 Wet/Dry filter.

Fyrir búr allt að 350 lítra. Vel með farin og flott dæla. Verð nýtt: 74.990 Mitt verð: 35.000 -lækkað-> 28.000
Einnig til sölu 50 lítra ferkanntað búr. 3000 kall. Gott sem sjúkrabúr eða eitthvað slíkt. Ég skal finna mál á morgun eftir vinnu og taka mynd, held það sé örugglega 50 lítra.
Hægt að hafa samband í EP, eða jonjonsson@gmail.com.