Ég var að kaupa fiskabúr, er búin að vera lengi með þá hugmynd að fá mér búr en ekki fundið neitt við hæfi.
Keypti eitt um daginn, það er ekki sláandi fallegt svosem en það er ljóslaust. Hvað segja fiskifræðingar um það?
Ég ætla að vera með búrið í stofunni sem er mjög björt.
Þetta verður einfalt ferskvatnsbúr.
Búrið er 100 L og um leið og ég er búin að kaupa mér skenk undir það þá byrjar stuðið

Hvar er fólk að kaupa 3d bakgrunna?
Annars fékk ég bakteríuna fyrir nokkrum árum og keypti mér 135 L búr og var með Convict seyði þar sem drápust nú eitt af öðru og á endanum seldi ég búrið...
Með kveðju og þökk.