400L Búrið mitt [Toni]
Moderators: keli, Squinchy, ulli
400L Búrið mitt [Toni]
Hér ætla ég að hafa smá þráð um búrið sem ég var að starta.
Búrð er 400L Jewel búr og ég byrjaði á því að rífa innbyggðu dæluna úr því og nota hana sem powerhead í búrinu, ég ætla að byrja á því að keyra búrið á tunnudælu og sjá hvernig það gengur.
Hér eru allavega myndir af veseninum á okkur hehe semsagt sóttum sjó útí sjó

- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
sjór er nú ekki minn tebolli en þetta er flott uppröðun í búrinu á neðstu myndinni... hvaða fiska ætlaru að setja í búrið?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Herru ég er kominn með par af nemo og einn Damsel, leyfa þeim aðeins að koma flórunni af stað, einnig kominn með meira liverock. Skal henda inn nýrri mynd á eftir.
Andri sjórinn var aldrei minn tebolli en ákvað að prufa aðeins að fara útí þetta þó ég sé ekki með 100% búnað eins og er...
Andri sjórinn var aldrei minn tebolli en ákvað að prufa aðeins að fara útí þetta þó ég sé ekki með 100% búnað eins og er...
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Hér er ein nýleg af búrinu
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Þetta er flott
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
frábært
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Er ekki einhver meistari sem getur sagt mér hvað þessir heita
[1]
[2]
[3]
[4] Og rakst á þennan áðan gott/slæmt ?
úps soldið stórar myndir
[1]
[2]
[3]
[4] Og rakst á þennan áðan gott/slæmt ?
úps soldið stórar myndir
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Flott byrjun hjá þér. Eitt sem ég vill samt benda þér á það er það að tunnudæla getur reynst hættuleg í saltvatnsbúrum þar sem i mediunni getur farið að byggjast upp úrgangsefni og þá virkar tunnudælan frekar eins og nitrate verksmiðja heldur en hluti af hreinsunarbúnaðinu. Frekar myndi ég taka alla mediu úr dælunni og nota hana sem straumdælu. Ég byrjaði með tunnudælu og var í endalausu brölti með hana og ekkert gekk upp en svo skipti ég yfir í sump með próteinskimmer, svamphreinsidælu og smá refugium og þá fór að ganga betur, samt var alltafvandræði með nitrate. Svo tók ég svampinn úr og er því núna bara með próteinskimmer og þetta smá refugium og það hefur aldrei verið neitt vesen síðan. Próteinskimmerinn tekur mest af drullunni og restina ryksugar maður bara af botninum í sumpnum þegar skipt er um vatn.
Þetta a neðstu myndinni er bristle ormur sem er hluti af cuc (clean up crew) i burinu þ.e hann étur urgang fra fiskunum og matarleyfar þannig það fari ekki að rotna i burinu með þeim afleiðingum að nitrate/nitrite/ammonia fer að aukast. Semsagt goður ormur Þó ber að varast að koma við hann ef þú ert eitthvað að brölta í búrinu þar sem hann er þakinn broddum sem er víst sárt að fá í sig. Ef hann verður mjög stór getur hann einnig farið að valda vandræðum t.d. hef ég lesið um að þeir hafi étið fiska á næturnar þegar þeir sofa.

350 l. Juwel saltvatnsbúr
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Pic 2-4 er Furry green mushroom.
þarf helst að sjá hit undir Actinic ljósi :s
ps pic1 er þetta frá Dgarðinum?
þarf helst að sjá hit undir Actinic ljósi :s
ps pic1 er þetta frá Dgarðinum?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Jæja gott að vita að þetta sé "góður" ormur hehe en já langar hrikalega í sump og skimmer, ætla aðeins að sjá til. Gengur allavega mjög vel hingað til.
Gott að vita með sveppina en já pic1 er grjót úr dýragarðinum. kannastu eitthvað við það ?
Gott að vita með sveppina en já pic1 er grjót úr dýragarðinum. kannastu eitthvað við það ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Nokkrar myndir
Einn í feluleik
Einn í feluleik
-
- Posts: 218
- Joined: 23 Jan 2009, 09:18
- Location: RVK
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Heldur betur.Toni wrote:Gott að vita með sveppina en já pic1 er grjót úr dýragarðinum. kannastu eitthvað við það ?
Tessi er sirka 5cmx4cm þetta er Man m8 Lr ekkert verra en annað en það var flutt inn af dýrabúðini í kef fyrir mörgum árum.
Annars er ég búin að gefast upp á því að finna hver það sem tók allt frá mér án þess að borga fyrir það.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Já var þessi bútur hluti af því ? ég get alveg fengið þá í dýragarðinu til að sanna það að ég hafi keypt þetta hjá þeim... spurning um að tjékka hvaðan þeir fengu þetta.. Ég vil alls ekki láta einhvern halda að ég hafi stolið einhvejru.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
er alls ekki að seyja að þú hafir gert það
Sá sem hefur tekið frá mér hefur komið því í dýragarðin.
Sá sem hefur tekið frá mér hefur komið því í dýragarðin.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Getur einhver sagt mér hvað þessi sveppur var að gera.. allt í einu í gær tók hann sér til og lokaði sér alveg í svona klukkutíma, fékk hann eitthvað að éta eða ?
Fyrir
Eftir
Fyrir
Eftir
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
langt síðan vatnskipti voru gerð ?, gott að mæla vatnið og sjá hvort ammonia NH4 sé á svæðinu, og svo Nitrite NO2 og Nitrate NO3
annars hefur eitthver líklegast verið að narta í hann
annars hefur eitthver líklegast verið að narta í hann
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
sennilega verið að étta.
gaf mínum stundum rækjur
gaf mínum stundum rækjur
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Já þarf að mæla vatnið(sjóinn) hjá mér..
En Ulli já mér finnst það líklegt því ég var eimmit að gefa fisknum að borða þegar hann allt í einu lokaði sér
takk fyrir svörin
En Ulli já mér finnst það líklegt því ég var eimmit að gefa fisknum að borða þegar hann allt í einu lokaði sér
takk fyrir svörin
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Ein sp. var að festa kaup á eina Anemone, nú er hún komin langleiðina bakvið grjót, þarf ég að hafa einhverjar áhyggjur af henni ?
keypti hana í gær og hún var í allan gærdag á sama stað og ég setti hana á og var voða flott þá. haldið þið að hún eigi ekki eftir að koma sér þaðan út og koma sér fyrir einhvernstaðar ?
keypti hana í gær og hún var í allan gærdag á sama stað og ég setti hana á og var voða flott þá. haldið þið að hún eigi ekki eftir að koma sér þaðan út og koma sér fyrir einhvernstaðar ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
grasið er oftast grænna hinumegin við klettinn fyrir anemone, ættir ekki að hafa áhyggjur held ég.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
á maður að vera að standa í því að grafa hana upp og færa hana ? eða leyfa henni að rölta um búrið bara ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Anemonur finna ser sjalfar staðinn i búrinu sem hentar þeim best. Það þyðir ekkert að færa hana aftur þar sem hun færir sig þa bara aftur. Tu getur profað að breyta straumnum i búrinu og þannig gert eftirsóknarvert fyrir hana að færa sig sjálf eitthvert annað. Eg hef verið með nokkrar en alltaf hafa þessi ferðlög endað i dæluinntaki með tilheyrandj leiðindum.
350 l. Juwel saltvatnsbúr
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Þær festa sig yfirleitt þar sem þær gera breytt úr sér rétt undir þar sem straumur er góður.
Ef það gerist ekki breyta dælunum.
Ef það gerist ekki breyta dælunum.
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Já hún er nú komin fram núna ætla að leyfa henni að rölta aðeins um... hvað þarf að gefa henni að éta ? rækjubita ?
Re: 400L Búrið mitt [Toni]
Já það dugar einu sinni til tvisvar í viku eða bara eitthvað sjávarfang úr dýraríkinu.
Ef þú ert með trúða þá færa þeir henni bita sem eru of stórir fyrir þá sjálfa.
Ef þú ert með trúða þá færa þeir henni bita sem eru of stórir fyrir þá sjálfa.