Tunnudælan er farinn að leka hjá mér.
Er gott að bera vaselín eða eitthvað annað á gúmíþéttihringina?
HJÁLP! Tunnudælan lekur
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Hvernig dæla er þetta og hvar er lekinn ?
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Þetta er Eheim pro 3 2075 og virðist leka með lokinu. Það er einhver gúmmí þéttihringur þarna á milli sem ég held að sé að klikka. Er búinn að taka dæluna í sundur og þrífa allt og prófaði að sjóða gúmmí hringinn (fannst eins og ég hefði einhvetíman heyrt að það gæti hjálpað). Er búinn að setja hana ofan í bala og aftur í gang en hún er ennþá að leka. Þetta helvíti er búið að eyðileggja skápinn undir búrinu og parketið.
Eheim er RUSL!
Eheim er RUSL!
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Það þarf að viðhalda pakkningunni á öllum dælum, sama hvort þær heita eheim eða eitthvað annað. Þegar pakkningin er orðin það léleg að hún er farin að leka þá er það venjulega orðið of seint og maður þarf að kaupa nýja pakkningu. Ef maður tekur pakkninguna úr í hvert (eða annað hvert) skipti þegar maður opnar dæluna og makar feiti á hana (sem fylgir með dælunni), þá kemur maður í veg fyrir svona og pakkningin heldur jafnvel í tugi ára. Gúmmi er "fljótt" að skorpna án viðhalds og þessvegna kemur þetta fyrir.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Fygldi ekkert feiti með dælunni. En er ekki hægt að kaupa þetta einhvestaðar?
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Þú getur ef þú vilt, fengið sérstaka Eheim feiti fyrir o hringi í dýraríkinu.bine wrote:Fygldi ekkert feiti með dælunni. En er ekki hægt að kaupa þetta einhvestaðar?
Smá bréf kostar eitthvað um 800 kr.
Líklegast eru o hringirnir samt orðnir ónýtir.
500l - 720l.
Re: HJÁLP! Tunnudælan lekur
Það fylgir svona bréf með öllum nýjum eheim tunnudælum:
Í leiðbeiningunum stendur hvað maður þarf að nota feitina oft á pakkninguna.
Í leiðbeiningunum stendur hvað maður þarf að nota feitina oft á pakkninguna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net