Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Bjólfur
Posts: 44
Joined: 01 Sep 2010, 17:48
Location: Hfj

Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Bjólfur »

Var að lesa þráðinn um hvítblettaveiki eftir Varg

Þar stendur að í gróðurlaus búr ætti að salta en gróðurbúr ætti að lyfjabaða.

Nú er bara nýjasti fiskurinn minn með bletti um allt og einn eldri sem klórar sér en sýnir engin bletta einkenni, ég er með milli 7-12 plöntur og fullt af flotgróðri í búrinu á ég þá að sleppa því að salta??

Svo var ég að lesa að rækjur þoldu ekki lyfjagjafir, ég er með slatta af þeim líka og þar eina eggjafulla. (líka fullt af eplasniglum og öðrum)

Hvað á ég að gera?? :(
Kv
Anna

100L
User avatar
Sibbi
Posts: 1131
Joined: 09 Aug 2010, 18:29
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Sibbi »

Það hefur verið allt í lagi hjá mér að salta, bara allsekki ofmikið í gróðurbúr.
Ég veit ekki hvað telst mátulegt, en séníin hérna á spjallinu eru að salta 2-4gr. í pr. 10L.
Ég gæti trúað að ég hafi oft skellt 2-3gr. þótt gróður hafi verið í búrinu, reini hinsvegar að hafa vatnaskipti fyrr vegna gróðursins.

En það koma ábyggilega meira vitibornara fólk með betri upplýsingar hér.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Tango
Posts: 162
Joined: 15 Apr 2011, 10:44
Location: Hafnafjörður

Re: Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Tango »

það er líka hægt að einangra veika fiskinn og salta vatnið bara hjá honum í svona 3 daga virkar fínt hef stundum þurft að gera það því ég er með mikinn gróður.
---------------------------
530 L síklíðu búr.
200 L þrískipt uppeldisbúr.
130 L Gotfiskabúr.
130 L froskabúr.
4 X 200 L Rekki.
User avatar
Bjólfur
Posts: 44
Joined: 01 Sep 2010, 17:48
Location: Hfj

Re: Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Bjólfur »

Jæja skrapp niðrí Dýraríki og spjallaði við vini mína um þetta, áhvað að prufa að nota Sera med Protazol, það á víst ekki að innihalda þau efni sem drepa rækjurnar :roll: http://www.sera.de/uk/pages/products/in ... l.html[url][/url]

Þá er bara að bíða og sjá til, geri svo 80% vatnsskipti á morgun. Setti líka loftdæluna í gang og tók kolafílterdæmið sem var í úr.

Vona það besta :D
Kv
Anna

100L
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Andri Pogo »

Gott að eiga góða vini :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Bjólfur
Posts: 44
Joined: 01 Sep 2010, 17:48
Location: Hfj

Re: Hvítblettaveiki í 100L gróðurbúri

Post by Bjólfur »

Haha já hjálpar að hafa unnið þarna í nokkur ár :)
Kv
Anna

100L
Post Reply