Búrin mín, 720L á bls.11

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

mínir fiskar eru alltaf að endurrinnrétta gróðurinn hjá sér :/
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

allt í fína hjá hákarlinum, hann rekst stundum utan í á blindu hliðinni en annars allt í góðu held ég.
Hann hefur verið að éta ýsu og rækjur hjá mér með bestu lyst og kjafturinn kom mér á óvart, hann virðist ekkert hafa fyrir því að skella rækjubita uppí sig.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Mér finnst nú hálf óhuggulegt að sjá blindu hliðina.

Veistu hvort gatið á eftir að holdgast?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Veistu hvað kom fyrir hákarlinn ?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

mér skilst að það eigi bara eftir að gróa fyrir þetta en verði samt holan eftir.
En það var herra Channa sem át augað úr honum :?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Langaði bara að deila með ykkur að skalakjáninn er ekki eins saklaus og hann lítur út fyrir að vera... hann hefur verið duglegari en flestir aðrir í búrinu við að éta fóðurfiska :P
Hann kom mér á óvart um daginn þegar ég gaf nálafiskinum að hann fékk sér einn, einsog ekkert væri sjálfsagðara.
Svo var ég að gefa nálinni 6 tetrur áðan, nema nálin beit í eina en náði ekki að éta hana. Ég tók um sporðinn á henni og skalinn borðaði hana úr lófanum.

kannski bara upprennandi skrímsli hjá mér ef ég þjálfa hann vel :lol:
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

hahaha, ég hef alltaf haldið því fram að þessir skallar séu skaðræðisskepnur.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Nýjasti íbúinn í 110l búrinu að teikna hjarta fyrir mig :oops: :
Image

Pangasiusinn:
Image

Image

Pósa:
Image

Walking Catfish kominn í 17cm:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

vá ertu að djóka með vöxtinn á walking catfish! :shock:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jebb :shock:
svo eru stærri Clown hnífarnir 20cm

ég verð að fara að mæla alla fiskana og fylgjast betur með hvað þeir vaxa
-Andri
695-4495

Image
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

þú þyrftir nú frekar að fara að huga að fleiri búrum

hvernig hafðiru hugsað þér þetta í framtíðinni?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

helduru að ég sé ekkert að hugsa útí það :P

En annars ætla ég að reyna að teygja það framyfir áramót að fá mér stærra búr. Þá líklega eitthvað í kringum 1000l.
Þá ætla ég að reyna að finna eða smíða nógu stúrt búr undir hnífana þrjá, amk ætla ég að hugsa stærðina út frá þeim því þeir verða líklega fullvaxnir eftir ca ár.

Svo ætla ég að sjá til á næstu mánuðum hvernig þeim kemur saman við aðra fiska eftir því sem þeir stækka og hvort einhverjir eiga ekki eftir að geta verið saman.

Einhverjir fiskar geta verið áfram í 180l búrinu ef ég kýs að eiga það áfram. Kannski skipti ég því uppí 400 lítra eða jafnvel vera bara með eitt stórt.

Svo ef ég á að vera hreinskilinn veit ég ekki alveg hvað ég á að gera við pangasiusinn en af því sem ég hef lesið um hann stækkar hann ekki mjög hratt eftir 30cm, eða um 10cm á ári eftir það.
Ég hef þá einhvern tíma til að finna lausn á því.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þessar skepnur stækka hraðar en maður heldur, ég var og er alltaf að treina það að fækka fiskum eða stækka búr. Nokkrir mánuðir í bið virðast ekki mikið en fiskarnir eru oft ótrúlega fljótir að stækka á þeim tíma. Þú ert líka með marga "unglings" fiska sem eru á hraðvaxtarskeiði en eiga svo eftir að hægja á sér.
Um að gera bara að fara að spá í 1000 lítrana sem fyrst. :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Jæja ég fór í dag að ath með búr og ætla ég að reyna að kaupa það á næstu mánuðum, vonandi fyrir áramót :?
Fyrir valinu verður tveggja metra langt 720l Aquastabil :-)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

smá öfund hérna megin :)
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Andri Pogo wrote:Jæja ég fór í dag að ath með búr og ætla ég að reyna að kaupa það á næstu mánuðum, vonandi fyrir áramót :?
Fyrir valinu verður tveggja metra langt 720l Aquastabil :-)
líst mér á kallinn ! ánægður með fólk sem fær sér fullvaxið búr.

annars er svo litill verðmunur á 720 og 900 að það borgar sig eiginlega að fara bara alla leið ;)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já það er vissulega freistandi, en ég fékk verðin á báðum búrunum, 720l og 900l, með ljósum, skáp, dælu og öllu sem til þarf og munurinn á þeim var ~100þ sem mér fannst of mikill munur fyrir þessa auka 15cm dýpt.
Kannski ekki svakalega háar upphæðir en allt telur þegar maður er í skóla...

Svo eftir smá mælingar á íbúðinni myndi 900l búrið heldur ekki komast inn, hvorki inn um hurðina né glugga :P 720l búrið rétt sleppur inn um stofugluggann :lol: erum í kjallara íbúð og gluggarnir ekki í fullri stærð.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

.. BARA SAGA Í GEGNUM VEGGINN MAÐUR ! Image
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

100.000 kr munur ? ? já það er aðeins meira en mig minnti . .

en þú verður ekki svikinn af 720 ltr. . og líka hægt að fá alvöru skáp með því búri .

eitt þrusuflott 720 ltr í action
Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jább, fór og kíkti á eitt 720l í fyrirtæki og leist mjög vel á stærðina.

En annars góðar fréttir, Nálafiskurinn át rækju áðan !!!
Mjög stoltur af honum, þó þetta hafi sjálfsagt verið óvart hjá greyinu...
Var að gefa og honum brá svona við að sjá fyrstu rækjuna detta framhjá honum að hann stökk á hana, hann hefur gert þetta einu sinni áður en í fyrra skiptið spýtti hann henni út úr sér eftir smá japl.
Ég gaf honum svo Rassaboru (keilutetru) í verðlaun :lol: sem hann reyndar beit í, drap og sleppti svo...
Kannski hann sé bara búinn að skipta um lífsstíl :P

Og getiði hver át dauða keilutetruna? Jú, Skalinn 8)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Það er held ég bara búið að gróa alveg fyrir gatið á Pangasius, tók eftir því í gær, búið að fyllast vel uppí:
Image
-Andri
695-4495

Image
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

allt annað að sjá hann

Ég mæli með að þú venjir fiskana þína ekki allt of mikið á það að borða bara lifandi fóður
ég er búinn að koma öllum mínum monsterum uppá það að taka flögur og venjulegt fóður, meira að segja Shovelnose
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég gef bara nálafiskinum lifandi, hinir þurfa bara að borða það sem er í boði :wink:
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Tók upp video að gamni áðan, ætlaði að gefa nálafiskinum tvær tetrur í tilefni þess en sú seinni endaði í kjaftinum á öðrum :P

Afsaka léleg gæði: http://www.youtube.com/watch?v=VV5IKIVOg2M
-Andri
695-4495

Image
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

flott

svakalega er WC orðinn stór hjá þér :shock:
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

hahahah magnað
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

2 ný video

fyrst gaf ég lifandi orm, í þremur bitum. Sjáiði hverjir ná bitunum? :P
http://www.youtube.com/watch?v=MVl2hE6Y_hU

svo nokkra rækjubita, var aðallega að reyna að fá nýrri clown hnífana til að koma fram en þeir sjást lítið.
http://www.youtube.com/watch?v=nXEc9W1SMeo

Fyndið hvað Shovelnose er góður með sig, lætur sem hann sjái ekki matinn :lol:
Leiðinlegt hvað þetta er í lítilli upplausn og lélegum gæðum en samt gaman að sjá smá tilbreytingu frá ljósmyndum :-)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Jæja fullt af nýjum myndum :mynd:

Svona lítur búrið út í dag, reyndar búinn að laga plönturnar en það endist ekki lengi:
Image

Skalinn að narta aðeins í Nálafiskinn:
Image

-
Image

Rauðugginn er ágætis þörungaæta, mætti vera duglegari :P
Image

-
Image

Smá stærðarmunur á Clown Knife og Black Ghost:
Image

Tveir litlir nýir Senegalus, mjög líklega kk og kvk:
Image

Hann er að éta mat, ekki stein :P Verð með fínni möl í næsta búri fyrir þá.
Image

-
Image

-
Image

Hnífahornið:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Post by María »

Flottar myndir :D
Alltaf gaman að myndum.
María
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

skemmtilegt að sjá svona samanburðarmyndir, maður sér ekkert fiskana sína stækka þegar maður horfir á þá daglega en svo sá ég þessar tvær myndir :shock:

Þetta er sami blómapotturinn, 11 vikur á milli mynda:
Image

Image
-Andri
695-4495

Image
Post Reply