Langar í Malawi búr

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Langar í Malawi búr

Post by María »

Mig langar voðalega að fá Malawi búr.
Ég get ekki fengið mér stærra búr en 240 l.
Hvaða fiska get ég sett í þessa stærð af búri?
María
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú getur sett nánast allar Malawi sikliður í 240 lítra búr, best væri þó að halda sig við Mbuna fiskana sem verða sjaldnast stærri en 10-12 cm en sleppa Utaka fiskunum eins og td. Haplochromis og fleiri tegundum sem verða fullstórir fyrir 240 l.
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Ég er nú bara með 200 lítra búr og í því hafa búið Yellow lab, Zebrar og fuelliborni án vandkvæða síðustu 7 ár. Mest voru einhver 15 stykki af fiskum í búrinu í einu en það var að vísu helst til mikið af því góða.
Ég mæli einlæglega með malawi síklíðunum þær eru harðgerðar og verða sjaldan veikar,því fylgir þeim mikið minna stúss en hinum hefðbundnu fiskum s.s. guppy, tetrum, molly og platty sem ég hef átt áður. Fyrir utan náttúrlega hvað þær eru fjölbreyttar og gull fallegar :lol:
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Post by María »

Takk fyrir þetta :D
En hvað get ég í mestalagi haft marga fiska?
María
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er með eitt 240 l Malawi búr og í því eru 25 eða fleiri fiskar, það er reyndar fullmikið en svona 15-20 fiskar er stórfínt.

Image
240 lítra Malawi.
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Vá þetta er snilldar flott búr Vargur :D
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Post by María »

Takk fyrir þetta

Það er þetta búr sem fékk mig til að langa í Malawi sikiliður (eða fékk mig til að langa meira í Malawi sikiliður).
Rosalega flott búr hjá þér Vargur

En hvað kosta svona fiskar?
María
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Algeng verð er 1-2 þús. fyrir fisk, en til eru ódýrari og dýrari tegundir.
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Post by María »

En með 180 lítra.
Hvað get ég haft marga fiska í 180 l. búri?
og er erfiðara að finna fiska sem passa vel saman?
María
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Í 180 l búri er ágætt að vera með um 15 fiska en þá er betra að vanda aðeins valið á fiskunum, td. hafa fleiri fiska að sömu tegund eða velja rólegar týpur.
User avatar
acoustic
Posts: 631
Joined: 27 Apr 2007, 21:06
Contact:

Post by acoustic »

ég er með malawí síkliður ef þú villt kaupa.
User avatar
María
Posts: 92
Joined: 27 Jun 2007, 12:09
Location: Hafnarfjörður

Post by María »

acoustic wrote:ég er með malawí síkliður ef þú villt kaupa.
Hugsa málið
Þyrfti fyrst að fá mér búr :roll:
María
Post Reply