Er erfitt að veiða fiskinn upp úr búrinu?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Er erfitt að veiða fiskinn upp úr búrinu?

Post by Rodor »

Ég las einhversstaðar að gott væri að veiða fiska upp úr búri þegar þeir eru sofandi. Ég vissi þá ekki að þeir svæfu, þeir geta allavega ekki lokað augunum.
Málið er að láta vera slökkt hjá þeim í einhvern tíma og þá færist yfir þá ró og er eins og þeir séu í dvala.
Ég ætlaði að prófa þetta áðan og ná seiðafullu hrygnunni upp úr. Ég opna búrið og kveiki ljósið, fiskarnir eru allir í móki, en hrygnan sést ekki. Hún heldur sig alltaf á sama svæðinu og hefur því væntanlega lagt sig á góðum felustað.
Það er svolítið skondið að sjá Óskar liggjandi sofandi hálf skakkan á botninum, hallandi sér upp að viðarbút svo hann fari ekki alveg á hliðina.
Last edited by Rodor on 30 Jul 2007, 23:34, edited 1 time in total.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Það sem hefur oftast reynst mér vel er að veiða fiskinn uppúr við vatnsskipti(þ.e.a.s. þegar að búrið er hálffullt af vatni) og jafnvel taka stóra hluti uppúr eða færa þá til hliðar
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir sofa ekki en fara í einhverskonar hvíldarástand sem má líkja við svefn. Þetta trikk virkar ansi vel, það eina er að vera með það á hreinu hvar fiskurinn er með bælið sitt og vera svo snöggur að háfa hann upp.
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Ég hefði átt að reyna þetta þegar ég var að færa zebra hrygnuna mína úr aðalbúrinu í uppeldisbúrið ég var í góðar 45 mínútur að ná henni :shock: Endaði á að rífa allan gróður og grjót upp úr búrinu og það var nú engin smá vinna að taka það uppúr og koma því svo aftur fyrir. Ég er reyndar komin algerlega úr æfingu við svona fiskveiðar hef ekki þurft að veiða fisk úr búrinu í 4-5 ár þ.e.s síðan ég veiddi mömmu hennar upp úr.
User avatar
Rodor
Posts: 935
Joined: 29 Dec 2006, 13:39
Location: Reykjavík

Post by Rodor »

Það endaði með því að ég tók upp steinana og trékubbana og var í klukkutíma eltingaleik við að ná henni upp úr. Þá var hún orðin ansi þreytt. Ég veiddi líka 1 kribbu par og 1 fangasiklíðu par.
Ég veit bara ekki hvernig seiðunum mun reiða af innan um þessa 5 fiska.
Post Reply