Sælir,
Ég er með 180L búr og 50L sump, slatta af LR, skimmer og svo á ég von á allskonar media og kóral kurli til að bæta hreinsunina hjá mér.
Hvernig væri að bæta tunnudælu við? Það væri að öllum líkindum til bóta en væri ávinningurinn mikill eða smávægilegur?
Tunnudæla fyrir sjávarbúr?
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Tunnudæla fyrir sjávarbúr?
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
Re: Tunnudæla fyrir sjávarbúr?
Ég myndi ráðleggja þér að sleppa alveg tunnudæluni. Hún er bara til vandræða þar sem í henni safnast drulla sem eykur nitrate framleiðslu. Það er að vísu hægt að sjá til þess að þetta gerist ekki með því ða þrífa hana MJÖG reglulega en það er bara hellings vinna fyrir lítinn ágóða þar sem lífræna niðurbrotið fer fram í grjótinu og skimmerinn, ef hann er nógu öflugur, á að sjá um restina ásamt því sem regluleg vatnsskipti gera.
Ég var sjálfur með tunnudælu til að byrja með og það gekk ekkert upp þangað til ég losaði mig við hana og fékk mér sump með próteinskimmer.
Mjög sjaldgæft er að menn séu með tunnudælur við sjávarbúr og þegar svo er er þeim yfirleitt skipt út mjög fljótlega vegna þessara aukavinnu sem ekki skilar sér í bættum vatnsgæðum.

350 l. Juwel saltvatnsbúr
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Tunnudæla fyrir sjávarbúr?
Ok var bara að velta þessu fyrir mér þar sem ég sá góða á mjög góðu verði.kristjan wrote:Ég myndi ráðleggja þér að sleppa alveg tunnudæluni. Hún er bara til vandræða þar sem í henni safnast drulla sem eykur nitrate framleiðslu. Það er að vísu hægt að sjá til þess að þetta gerist ekki með því ða þrífa hana MJÖG reglulega en það er bara hellings vinna fyrir lítinn ágóða þar sem lífræna niðurbrotið fer fram í grjótinu og skimmerinn, ef hann er nógu öflugur, á að sjá um restina ásamt því sem regluleg vatnsskipti gera.
Ég var sjálfur með tunnudælu til að byrja með og það gekk ekkert upp þangað til ég losaði mig við hana og fékk mér sump með próteinskimmer.
Mjög sjaldgæft er að menn séu með tunnudælur við sjávarbúr og þegar svo er er þeim yfirleitt skipt út mjög fljótlega vegna þessara aukavinnu sem ekki skilar sér í bættum vatnsgæðum.
Semsagt lítill ávinningur fyrir mikla vinnu.
Þá held ég að ég hafi þetta bara eins og þetta er, nema ég á von á seachem purigen, phosguard og kolum, sem ég skelli þá bara í sumpinn.
takk takk
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur