Sælir,
Það er kominn upp leki í aðalbúrinu mínu (það dropar neðarlega úr að framan kannski 1/3 líter á 12 tímum).
Mig bráðvantar ílát undir vatn og það væri virkilega vel þegið ef einhver kittímeistari gæti séð sér fært að kíkja á mig á sunnudaginn.
Ég hef bara kíttað skilrúm í sumpinn minn sem er sem betur fer stór fyrir búrið eða 140L fyrir 180L búr svo ég get bjargað lífríkinu.
Verst að það er próf kl 9 á morgun í Þjóðarétti og ég verð að lesa eins og enginn sé morgundagurinn í dag.
Planið er vonandi að sækja einhver ílát eftir hádegi á morgun og kaupa kittí og þurrka búrið. Svo að skella þessu saman snemma á sunnudaginn og vonandi koma öllu upp á seint á mánudaginn. (sem betur fer enginn tími þá).
Getur einhver reynslubolti í smíðum verið svo vænn að líta við hjá mér?
Leki
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Leki
Þú færð 120 og 200l síldartunnur á undir 10þús í saltkaupum. Það er fínt að eiga þannig þegar maður að vesenast í saltin (t.d. blanda sjó í þeim). Ef þú hefur pláss.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Leki
Takk, hef það bakvið eyrað.keli wrote:Þú færð 120 og 200l síldartunnur á undir 10þús í saltkaupum. Það er fínt að eiga þannig þegar maður að vesenast í saltin (t.d. blanda sjó í þeim). Ef þú hefur pláss.
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur
- Alí.Kórall
- Posts: 131
- Joined: 02 Jul 2012, 16:35
- Location: Garðabær
Re: Leki
Stoppað uppí lekann, engin afföll svo langt sem ég veit.
Á "bara" eftir að veiða damselinn úr sumpinum. úff...
Á "bara" eftir að veiða damselinn úr sumpinum. úff...
mbkv,
Brynjólfur
Brynjólfur