Bardagafiskar?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Kristel
Posts: 30
Joined: 01 Jul 2007, 21:50
Location: Kópavogur

Bardagafiskar?

Post by Kristel »

Ég var að hugsa um að fá mér bardagafisk í annað búr.Hvað þarf það að vera stórt? Ég var að hugsa um einn karl og svo kellingu. Getur bara verið ein kerling eða er betri að hafa fleiri? :roll:

kv. Kristel
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Einn bardagafiskur þarf bara nokkra lítra en ekki er æskilegt að hafa karlinn með kerlingum nema í sæmilega stóru búri þar sem hann getur verið ansi leiðinlegur við kerlurnar. Ef þú ætlar ekki hreinlega að fara að rækta bardagafiska þá skaltu ekkert vera að brasast með kerlingar.
User avatar
Kristel
Posts: 30
Joined: 01 Jul 2007, 21:50
Location: Kópavogur

Post by Kristel »

ok, er best að hafa þá bara eina í litlu búri? Dafna þeir vel þannig?

Þarf maður dælu þá, eða er nóg að skipta um hluta vatns reglulega?

Hvað með hitara?

Ein með milljón spurningar :P

kv. Kristel
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Já best að hafa þá eina í litlu búri, en ef búrið býður uppá fleiri fiska er það í lagi, nema bardagafiskurinn angrar aðra fiska sem eru með slör, t.d. gúbbýkalla.
Það er allt í lagi að sleppa dælunni ef þú verður dugleg að skipta um vatn og nei þeir þurfa ekki hitara.

meira veit ég ekki um þá :P
-Andri
695-4495

Image
Post Reply