Guppy kvk dauði og lita missir
Guppy kvk dauði og lita missir
Ég var með tvær guppy kerlingar, þær hafa verið mikið í felum undan farið svo tók ég eftir í hádeginu á mánudag að önnur kerlan var dauð hin var enn í felum og var orðin frekar hvít miðað við hvernig hún leit út áður og frekar slöpp, syndir frekar illa og í 45 gráðu, hún virðist ekki nota sporðin mikið, karlarnir virðast allir í lagi svo ég tók kerluna og setti í skál með saltvatni í. Er einhver með hugmynd hvað gæti verið að kerlunni ?
Ég hef verið að bæta við plöntum í búrið undan farið, veit ekki hvort það gæti haft áhrif. Vatna skipt eru á 7-10 daga fresti og þá 50% - 60% í einu.
Heildar fjöldi íbúa í búrinu eru 2 fantail guppy karlar - 3 endler guppy karlar - 1 veik guppy kerling sem hefur verið fjarlægð - 2 eplasniglar og búrið er 58 lítra með dælu sem sér fyrir góðu súrefni í búrinu.
Ég hef verið að bæta við plöntum í búrið undan farið, veit ekki hvort það gæti haft áhrif. Vatna skipt eru á 7-10 daga fresti og þá 50% - 60% í einu.
Heildar fjöldi íbúa í búrinu eru 2 fantail guppy karlar - 3 endler guppy karlar - 1 veik guppy kerling sem hefur verið fjarlægð - 2 eplasniglar og búrið er 58 lítra með dælu sem sér fyrir góðu súrefni í búrinu.
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Er ekki bara möguleiki á að þú sért með alltof marka kalla á móti kerlum. Ég hef séð það hérna inni að það borgar sig að vera með 2 til 3 kerlur á hvern karl. Það er farið að fjölga hjá mér eitthvað af ráði loksins að mér finnst svo ég flutti kerlurnar frá og setti bara 2 kalla með. Vona að þetta lagist hjá þér. Myndi bjóða þér einhver seiði af þessum kvk sem mér sínist vera að lifa ef þú værir hérna á höfuðborgarsvæðinu.
Gangi þér vel
Gangi þér vel
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Var búið að detta það í hug, gott að einhver annar sé á þeiri skoðun. Ætla að prufa að fjölga kerlunum Takk
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Gæti verið líka bakteríusýking eins og t.d. costia, það passar við lýsingarnar hjá þér.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Ætti þá ekki saltið að drepa sýkinguna ?Agnes Helga wrote:Gæti verið líka bakteríusýking eins og t.d. costia, það passar við lýsingarnar hjá þér.
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Þetta hefur verið bölvað vesen hjá mér og ekki hefur það virkað að salta að viti.. fargaði öllum þeim fiskum úr búrinu sem voru með þessa sýkingu, náði að koma í veg fyrir frekara smit með að brimsalta búrið, mikil vatnskipti, hærri hiti og hita vatn yfir 35° og kæla það aftur í rétt hitastig. Einnig er hægt að fá lyf en ég komst ekki í það þá.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Ok takk, ég ætla að fylgjast betur með henni sj+a hvað gerist, hún virðist samt ekki vera með neina ertingu, er allavega ekki að nudda sér í steina.
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Costia er mjög algeng hjá gúbbum og getur verið mjög erfitt að losna við án þess að missa stóran hluta stofnsins...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Allir fantail gubbíar dóu en endler gúbarnir 3 lifðu og eru í fulllu fjöri. Veit ekki enn hvað dró hina til dauða
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
45° hiti á vatninu? fara þeir ekki bara sjóða, er með mína i um 25°
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Re: Guppy kvk dauði og lita missir
Ef þessu sé beint til mín þá kælir maður vatnið aftur.. fann eitthvað hér á leitinni sem mælti með þessu og það virkaði hjá mér. Hitinn átti að drepa einhverjar bakteríur sem voru í kranavatninu.Agnes Helga wrote:Þetta hefur verið bölvað vesen hjá mér og ekki hefur það virkað að salta að viti.. fargaði öllum þeim fiskum úr búrinu sem voru með þessa sýkingu, náði að koma í veg fyrir frekara smit með að brimsalta búrið, mikil vatnskipti, hærri hiti og hita vatn yfir 35° og kæla það aftur í rétt hitastig. Einnig er hægt að fá lyf en ég komst ekki í það þá.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr