Rækjuhvarf
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Rækjuhvarf
Það voru keyptar tvær rækjur í fiskabúrið fyrir nokkrum dögum en önnur þeirra hvarf á fyrsta degi. Í dag fannst skelin af henni en ekkert annað. Það sem ég er að pæla er hvort það sé eitthvað sem ég er að missa af? Eru hinir fiskarnir nokkuð að éta rækjurnar eða eitthvað? Er eitthvað sem maður þarf að passa upp á með þær?
Erum með tetrur, ryksugu (lítil bara), einn sverðdraga og einn Corydoras julii.
Erum með tetrur, ryksugu (lítil bara), einn sverðdraga og einn Corydoras julii.
Re: Rækjuhvarf
Flestir fiskar narta í rækjur ef færi gefst.
Ef þú sérð bara skelina þá er líklegt að rækjan þín hafi einfaldlega skipt um skel og haldi sér til hlés í fyrstu á meðan nýja skelin nær styrk.
Ef þú sérð bara skelina þá er líklegt að rækjan þín hafi einfaldlega skipt um skel og haldi sér til hlés í fyrstu á meðan nýja skelin nær styrk.
Re: Rækjuhvarf
sverðdragarar, ryksuga og corydoras eru ansi líklegir til að éta rækjurnar. Þú tekur reyndar ekkert fram um hvernig rækjur þetta voru.. Þær geta verið mis stórar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rækjuhvarf
ok þá ætla ég að leyfa mér að bíða og vona að hún láti sjá sig aftur síðar.
heyrðu þetta er líklegast þessi tegund:
http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... jan3n5toj3
Er eitthvað sem maður getur gert svo að rækjunum líði betur? Er algjört rugl hjá mér að vera að setja rækjur í svona búr?

Felustaðir. Annars er lítið vit í að setja þær í búr með fiskum, þeir éta þær venjulega
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Rækjuhvarf
oh æji en leiðinlegt, mér finnst þær svo sætar eitthvað hehe
En já við erum nú með eitthvað smá af felustöðum, en það er að bætast smátt og smátt í búrið. Læt þessar þá duga í bili, ef þær hverfa þá hugsa ég að ég haldi mig bara við fiskana hehe
En já við erum nú með eitthvað smá af felustöðum, en það er að bætast smátt og smátt í búrið. Læt þessar þá duga í bili, ef þær hverfa þá hugsa ég að ég haldi mig bara við fiskana hehe
Re: Rækjuhvarf
Ég veit nokkur dæmi um rækjur með fiskum, meira að segja sikliðum, mér hefur skilist að þær komist ágætlega af ef felustaðir eru fyrir þær, sérstaklega javamosi, en eigi erfitt með að fjölga sér, seiðin þá annaðhvort etin eða eitthvað annað.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Re: Rækjuhvarf
Við erum með grófann sand, ágætlega stórar steinvölur (sem þær ættu að komast undir en fiskarnir líklega ekki, ekki nema tetrurnar kanski hehe) og svo erum við með "trjádrumb" (er úr bara postulíni) sem er opinn að innan og hauskúpu sem er svarta myrkur inn í og uppáhalds felustaður ryksugunnar (og svo tvær litlar gerfiplöntur).
Er búin að vera á leiðinni í smá tíma að kynna mér gróðurinn og það, hef ekki komist í það ennþá
Er bara búin að vera að pæla hvort það sé vesen að þrífa búrið þegar gróðurinn er kominn í það (eins og ég segi, þá er ég aaaalgjör græðlingu í þessu hehehe).

Við erum með rækjur í flestum búrum og þær pluma sig vel með ólíklegustu fiskum og þéttur gróður er lykilatriði.
Re: Rækjuhvarf
Jæja önnur rækjan er komin í ljós aftur Þá er bara að vona að hin fari að birtast líka
Re: Rækjuhvarf
það virkar líka að raða helling af grjóti fyrir þær ef þú ert ekki með gróður,
vera með nóg af rótum (eins og maður fær í gæludýrabýðum)
eða fullt af gróðri, Java mosi er bestur, þá helling af honum þar sem
hann fær að vaxa í friði, vera með vallisneriu eða annan gróður.
Ég er með nokkrar rækjur með Congo tetrunum mínum,
svo erum við með rækjur með corydoras, kulii álum, sverðdrögum og fl. Gengur fínt.
En auðvitað er best að hafa þær einfaldega með guppy,endler og öðrum dverg fiskum,
sem láta þær alveg vera.

Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L