Vatnsskipti með slöngu
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Vatnsskipti með slöngu
Keypti slöngu áðan og ætlaði að nota hana til að tæma búrið mitt og ég hélt ég gæti notað maxi-jet 1200 dælu til að koma flæðinu af stað í slönguna en það er ekki alveg að virka. Á það samt ekki að vera hægt? Hvernig eruð þið annars að koma flæðinu í gang til að tæma/skipta út vatni?? Ekki fer ég að sjúga það í gang á 25m langri slöngu
Þú ættir að geta sogið í gegnum hana, ég hef reyndar ekki prófað svona langa slöngu, en það eru minni líkur á því að þú fáir vatn upp í þig þegar hún er svona löng. Þegar þú sýgur í slönguna þá þarftu bara að koma vatninu upp fyrir búrbrúnina og aðeins niður fyrir vatnsyfirborð og svo sér aðdráttarafl jarðar um restina!
Eins og þetta gekk vel þá kem ég þessu ekki aftur í gang Lítið vatn eftir en það er eins og vatnið sem er í slöngunni nú þegar eyðileggi þetta eitthvað, rennslið fer amk ekki af stað aftur Reyndi að tæma slönguna alveg af vatni og prufa aftur en allt kom fyrir ekki Hvað þarf ég að gera? Þetta var ekkert mál þegar slangan var alveg vatnslaus
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
er nógu mikill hæðarmunur á slönguendunum ? Semsagt er slangan í búrinu ekki nokkuð hærra uppi en þar sem vatnið rennur út?
Ef þú ert að láta renna í vask er hægt að festa þann enda við kranann og láta renna vatn í búrið í nokkrar sek og kippa svo slöngunni af krananum, þá byrjar strax að renna til baka.
Ef þú ert að láta renna í vask er hægt að festa þann enda við kranann og láta renna vatn í búrið í nokkrar sek og kippa svo slöngunni af krananum, þá byrjar strax að renna til baka.
Þú verður að vatnstæma slönguna áður en þú byrjar aftur. Það myndast svokallaður lofttappi í slöngunni ef þú tæmir hana ekki.iriser wrote:Eins og þetta gekk vel þá kem ég þessu ekki aftur í gang Lítið vatn eftir en það er eins og vatnið sem er í slöngunni nú þegar eyðileggi þetta eitthvað, rennslið fer amk ekki af stað aftur Reyndi að tæma slönguna alveg af vatni og prufa aftur en allt kom fyrir ekki Hvað þarf ég að gera? Þetta var ekkert mál þegar slangan var alveg vatnslaus
Yfirborð vatnsins í búrinu verður alltaf að vera hærra heldur en endinn á slöngunni þar sem vatnið rennur út úr.iriser wrote:Ohh, virkaði ekki, enda eflaust er vaskurinn hærri en botninn á búrinu svo það er kannski ekkert skrýtið
Prufa betur í kvöld!
Ps.
Þú ert nú með svo langa slöngu að þú ættir að geta látið vatnið renna út á götu!
Last edited by Rodor on 08 Aug 2007, 15:52, edited 1 time in total.
Takk geri þaðTodor wrote:Þú verður að vatnstæma slönguna áður en þú byrjar aftur. Það myndast svokallaður lofttappi í slöngunni ef þú tæmir hana ekki.iriser wrote:Eins og þetta gekk vel þá kem ég þessu ekki aftur í gang Lítið vatn eftir en það er eins og vatnið sem er í slöngunni nú þegar eyðileggi þetta eitthvað, rennslið fer amk ekki af stað aftur Reyndi að tæma slönguna alveg af vatni og prufa aftur en allt kom fyrir ekki Hvað þarf ég að gera? Þetta var ekkert mál þegar slangan var alveg vatnslaus
Hvernig notaru hana? Ertu með hana í búrinu og dælir vatninu í gegnum slönguna? Þannig að slangan fer þar sem vatnið fer út?Vargur wrote:Ég nota maxi-jet 600 til að tæma og virkar fínt og fer alltaf af stað án vandræða, ef eitthvað vesen er fyrst er oftast nóg að draga dæluna nær yfirborðinu til að koma rensli af stað.
Svo er gott að láta slönguendan fara í sem lægstan punkt, td. sturtubotn eða baðkarið.
Aulaspurning ég veit
- Varlamaður
- Posts: 1221
- Joined: 06 Nov 2006, 16:02
- Contact:
Þegar ég hef vatnaskipti nota ég baðkerið í verkið, ég tengi slönguna þar sem sturtan er tengd, mæli rétt hitastig á hinum stútnum og skipti svo yfir þegar réttu hitastigi er náð.
Ég skipti um vatn þannig að ég tengi slönguna við krana og læt renna í genum hana og kippi henni svo af og þá rennur allt til baka eins og það fái borgað fyrir það.
Nota ekki dælu í þetta né þarf að bragða á vatninu.

Ég hef verið að sjúga og láta vatnið í 25 lítra plastbrúsa og bera þá svo að salerninu og hella þar úr. Svo hef ég verið með lengri slöngu sem ég tengi við hitastillt blöndunartæki og bæti nýju vatni í.
Ég ætla að prófa þessa krana aðferð næst, ég sé að þetta er Grand Lux aðferð.
Á dönsku kallast það þegar vatnið er látið renna svona sjálfkrafa "hævert" og "siphon" á ensku, þið getið "googlað" orðunum upp og séð myndir og upplýsingar um þetta.
Í framhaldi af þessu langar mig að spyrja hvað menn séu að nota á enda slöngunnar til "ryksugunar" úr botninum? Sjálfur er ég með afskorna hálfs lítra kókflösku sem ég teipaði á slönguendann.

Last edited by Rodor on 10 Aug 2007, 12:02, edited 2 times in total.
Mig langar að spyrja aftur svipaðrar spurningar.
Ég keypti plasthólk, en lenti í veseni með hann þegar ég notaði Grand Lux aðferðina, slangan spýttist bara af þegar ég byrjaði að hleypa vatni í búrið. Svo þegar ég var búin að missa þetta stykki í sundur sá ég, að það var einstreymisloki á enda hólksins, sem ég verð að bora út til að nota Grand Lux aðferðina.
Með hverju mælið þið með, til að ryksuga upp úr botninum og hafið þið td. góða reynslu af rafhlöðusugum?

Í rvk og nágrenni er heita vatnið upphitað kalt vatn þannig að það skiptir engu máli hvort þú notir heita vatnið eða kalda eða bara bæði blandað sama í rétta hitastigið
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Ég bara neita að trúa þessu. Amk ekki í svona alhæfingu. Ég hef heyrt að á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu erum við að fá vatn beint af Hellisheiði og þá sé kísill og brennisteinssýra í því. Ég hef amk ekki þorað að nota annað en kalt vatn... og þá bara notað hraðsuðuketil eða pott og hitað vatn ef ég hef verið að skipta um mikið í einu.
ég á nú bara eftir með að trúa því að vatnsveitan sé að ljúga í sýningar ferðunum sínum um dreifingu vatns og verkum þess
Gerðu eitt, náðu þér í 2 alveg eins glös
láttu renna heita vatnið þangað til það er alveg sjóðandi (70°C) settu það í glas
Láttu renna kalda vatnið þangað til það er alveg ís (8°C) settu það í glas
Láttu einhvern annan setja bæði glösin inn í ísskáp (rugla þeim svo þú vitir ekki hvort er hvað) í svona hálftíma, 50 min
Og smakkaððu síðan og reyndu að finna heita vatnið

Heita vatnið í Reykjavík er upphitað vatn sem kemur úr borholu við Þingvelli. Ég hef litla trú á því að vatn í einhverjum hverfum komi annarsstaðar frá en það getur þó verið. Ef vond lykt er af heita vatninu er líklegast að lagnirnar í hverfinu séu gamlar og fullar af kísil. Ég hef heyrt af fólki í 108 sem ekki treystir sér til að nota heita vatnið sökum ólyktar.
Ég veit ekkért um heita vatnið í Hafnarfirði en við í Fiskabur.is notum það í öll búr án vandræða.
Ég veit ekkért um heita vatnið í Hafnarfirði en við í Fiskabur.is notum það í öll búr án vandræða.