Sæl öll Langaði til að athuga hvað ykkur þætti þægilegasta og besta leiðin til að halda fiskabúrum hreinum.
Við erum með 54 L búr og nokkra fiska í því, en auðvitað sest svolítið af kúk á botninn. Við erum komin með eins og vatnsryksugu (í raun bara plasthólkur með rist á endanum og slöngu í hinum sem fer svo ofan í fötu) sem á að hreinsa skítinn upp á milli steinanna á botninum en var að velta fyrir mér hvort þið hefðuð eitthvað betra ráð?
Er það algjört no-no að skipta alveg um vatn í fiskabúrum ef maður er í hreingerningunum?
Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
ég tek alltaf lágmark 60% þegar ég geri vatnsskipti heima og ryksuga alltaf botninn.
þú getur svosem alveg tekið allt vatnið en það þarf þá bara að passa að eyða ekki flórunni í dælunni og mölinni á sama tíma. Óþarfa stress fyrir fiskana samt að tæma búrið alveg eða nánast alveg.
Enn betra fyrir fiskana væri að gera tvöföld vatnsskipti, s.s. taka fyrst slatta og ryksuga og róta vel í mölinni, fylla búrið svo aftur og láta drulluna sem eftir er þyrlast upp og gera svo strax aftur vatnsskipti.

ah ok sniðugt fattaði það ekki (þetta með dæluna).
En ég prufa tvöfölldu vatnsskiptin næst takk takk!
En ég prufa tvöfölldu vatnsskiptin næst takk takk!
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Raunarsagt þarf að bíða 12 tíma með önnur vatnaskipti (ekki gera það strax eftir að þú gerðir vatnaskipti).
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Ó ok, hef það þá í huga.Snjodufa wrote:Raunarsagt þarf að bíða 12 tíma með önnur vatnaskipti (ekki gera það strax eftir að þú gerðir vatnaskipti).
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Af hverju ekki?Snjodufa wrote:Raunarsagt þarf að bíða 12 tíma með önnur vatnaskipti (ekki gera það strax eftir að þú gerðir vatnaskipti).
Ég sé enga ástæðu til að það sé eitthvað verra að skipta um vatn 2x með stuttu millibili.. Aðra en þá að það væri gagnlegra að skipta bara um aðeins meira vatn í fyrra skiptið og sleppa seinna skiptinu.
Til dæmis ef maður skiptir um 50% og svo strax aftur 50%, þá er maður í raun bara búinn að gera sama og skipta 1x um 75%.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Andri skrifar þetta afar skírt og skilmerkilega, farðu bara nákvæmlega eftir þessu hjá hinum.
Andri Pogo wrote:ég tek alltaf lágmark 60% þegar ég geri vatnsskipti heima og ryksuga alltaf botninn.
þú getur svosem alveg tekið allt vatnið en það þarf þá bara að passa að eyða ekki flórunni í dælunni og mölinni á sama tíma. Óþarfa stress fyrir fiskana samt að tæma búrið alveg eða nánast alveg.
Enn betra fyrir fiskana væri að gera tvöföld vatnsskipti, s.s. taka fyrst slatta og ryksuga og róta vel í mölinni, fylla búrið svo aftur og láta drulluna sem eftir er þyrlast upp og gera svo strax aftur vatnsskipti.
Sibbi. Ólæknandi og óviðbjargandi dellukarl.
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Sími: 860 0 860. (Nova)
Netfang: iceland@internet.is
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Hefur alltaf verið baunað á mig að stór vatnaskipti sem þessi ætti maður að gera á 12 tíma fresti svo að stressið á fiskunum er minna.. Stress á fiskum er eitt af því sem veldur veikara ónæmiskerfi og hættu á sýkingu .keli wrote:Af hverju ekki?Snjodufa wrote:Raunarsagt þarf að bíða 12 tíma með önnur vatnaskipti (ekki gera það strax eftir að þú gerðir vatnaskipti).
Ég sé enga ástæðu til að það sé eitthvað verra að skipta um vatn 2x með stuttu millibili.. Aðra en þá að það væri gagnlegra að skipta bara um aðeins meira vatn í fyrra skiptið og sleppa seinna skiptinu.
Til dæmis ef maður skiptir um 50% og svo strax aftur 50%, þá er maður í raun bara búinn að gera sama og skipta 1x um 75%.
Mátt leiðrétta mig ef mér hefur verið ráðlagt rángt en þetta er til að lækka stress á fiskunum vegna vatnaskiptana, því sumar tegundir eru viðhvæmar svo sem tetrur etc.
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
Ok takk fyrir þaðSibbi wrote:Andri skrifar þetta afar skírt og skilmerkilega, farðu bara nákvæmlega eftir þessu hjá hinum.Andri Pogo wrote:ég tek alltaf lágmark 60% þegar ég geri vatnsskipti heima og ryksuga alltaf botninn.
þú getur svosem alveg tekið allt vatnið en það þarf þá bara að passa að eyða ekki flórunni í dælunni og mölinni á sama tíma. Óþarfa stress fyrir fiskana samt að tæma búrið alveg eða nánast alveg.
Enn betra fyrir fiskana væri að gera tvöföld vatnsskipti, s.s. taka fyrst slatta og ryksuga og róta vel í mölinni, fylla búrið svo aftur og láta drulluna sem eftir er þyrlast upp og gera svo strax aftur vatnsskipti.
Re: Besta leiðin til að halda búrinu hreinu
farðu bara nákvæmlega eftir þessu hjá honum ,,,,, átti þetta að vera