Við bættum nýlega í búrið flotplöntu og vorum komin með gróðurperu, en núna er botninn á búrinnu smátt og smátt að verða bara grænn.
Ég var bara að lesa það núna að við ættum bara að hafa kveikt á perunni í 12 tíma á sólahring og munum gera það, en hvernig er það, eru þessir grænu þörungar eitthvað hættulegir?
Ryksugurnar eru duglegar að þrífa stærri steinanna og skrautið í búrinu, en mölin á botninum er búin að breyta um lit.
Grænir þörungar
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Re: Grænir þörungar
Var ljósatíminn s.s. yfir 12 tíma þegar þetta byrjaði að koma?
Ef svo er, myndi ég ryksuga botninn vel í næstu vatnsskiptum og sjá hvort þetta komi aftur.
Ef þetta kemur aftur, prófa þá að minnka ljósatímann niður í 8 tíma.
Ef svo er, myndi ég ryksuga botninn vel í næstu vatnsskiptum og sjá hvort þetta komi aftur.
Ef þetta kemur aftur, prófa þá að minnka ljósatímann niður í 8 tíma.
Re: Grænir þörungar
Við vorum soddan kjánar og föttuðum ekki að það þyrfti einhverntíman að slökkva ljósið þannig það var bara kveikt á því allan sólahringinn. Vissum bara ekki að það ætti ekki að vera þannig.
En núna verður bara kveikt á því 8 klst á dag í bili
En núna verður bara kveikt á því 8 klst á dag í bili