Hæ hæ
Jæja, eftir endalausar hornsílaveiðar sonarins var farið útí það að kaupa fiskabúr og fiska þar sem ekki tókst að halda lífi í hornsílunum honum til mikillar mæðu.
Keypti 54l búr með tilbehör, þ.e. dælu, hitara, sandur og gervigróður. Setti búrið upp eftir kúnstarinnar reglum (fékk leiðbeiningar í búðinni) og 2 sólarhringum síðar fórum við vísitölufjölskyldan og versluðum fiska.
Fyrir valinu urðu:
2 ryksugur (kann ekki nánari deili á þeim)
10 neon tetrur
2 gubby karlar
1 gullfiskur sem ber nafnið Gulli
Daginn eftir var önnur ryksugan dauð og Gulli mjög fælinn. Lá bara í felum þegar ljósið var kveikt. Þegar það var slökkt og enginn hávaði þá synti hann um og át. Gubby karlarnir voru dasaðir fyrsta daginn en svo voru þeir bara sprækir að mér sýndist en héldu sig mest efst í búrinu. Tetrurnar voru líka sprækar, voru mest neðarlega og færðu sig fram og til baka. Gubbyarnir átu vel sem og tetrurnar.
10 dögum eftir að fiskarnir komu í búrið, og Gulli alltaf jafn skrýtinn þá fórum við í 4 daga ferðalag. Setti svona matarkubb og fiskarnir voru kvaddir innilega.
En það var ófögur sjón sem beið okkar þegar við komum heim seint í gærkvöldi. Allar tetrurnar voru dauðar og hjúpaðar torkennilegum slýhjúp. Frekar mikið ógeðslegt. Gubbyarnir voru dauðir, en ekki svona slýugir eins og tetrurnar. Eina tetruna fann ég ekki. Gulli lá sem dauður væri undir steini, og héldum við að hann væri dauður líka. Ryksugan var sem dauð líka. Vatnið var mjög illa lyktandi, en ekki litað né gruggugt.
Þar sem við héldum að allir væru dauðir þá var ekkert annað að gera en að veiða þá uppúr og farga þeim, og tæma búrið. En það fannst lífsmark með Gulla og ryksugunni og var þeim dembt í skál og búrið tæmt og hreinsað og startað upp á nýtt. Við ítarlega skoðun á Gulla þá tókum við eftir hvítum blettum á sporðinum, herptum uggum - sérstaklega bakugginn, og hann liggur bara og "másar". Ryksugan er dösuð líka, er mjög slöpp en það er erfitt að sjá hvort hún er með doppurnar líka þar sem hún er svona yrjótt.
Allavegana, þá setti ég þá aftur í búrið þó svo það var ekki tilbúið (betra að hafa þá 2 þar en í pínulítilli skál held ég), fór í dýrabúðina og fékk lyf fyrir hvítblettaveiki sem heitir Sera protazol og er fyrir 5 mismunandi veikjum, og svo setti ég 5 matskeiðar af salti útí.
Þetta var kl 16 í dag, og núna kl 23 er Gulli ennþá mjög slappur, fannst hann vera að hressast áðan en svo slappaðist hann aftur. Hann hefur ekki einusinni rænu á að liggja undir stein eins og venjulega til að fela sig frá ljósinu. Ryksuguna hef ég ekki séð, hún er undir steini þar sem ég sé hana ekki. Hitinn á búrinu er 24°C, sama og hefur verið frá upphafi.
Eru einhverjar líkur á að þessir tveir lifi þetta af? Mér sýndist að sumir blettana á Gulla eru að byrja að dökkna, er það jákvætt? Á ég að setja meira salt? Skv leiðbeiningunum með lyfinu á ég að skipta um 80% af vatninu eftir 24 klst, á ég að setja meira salt þá? Hve mikið?
Hvenær má ég bæta fiskum útí? Við ætlum bara að hafa gullfiska, hafa ca 6 stk og ca 3 ryksugur. Er það nokkuð of mikið fyrir þetta búr?
Jæja, þetta er nú meiri langlokan, en þegar maður er svona algjör nýgræðingur þá er þetta allt svo framandi, hvað þá þegar maður lendir í svona uppákomu
Bkv, Anna
Fiskabúraraunir :(
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Leiðinlegt að heyra.
Ástæðan fyrir þessum hörmungum er sennilega sú að búrið er svo nýuppsett að ekki hefur náð að byggjast upp bakteríuflóra í því sem brýtur niður úrganginn frá fiskunu. Helgarfóðrið hefur því sennilega valdið ammoníak eða nitrat bombu sem hefur drepið fiskana.
Fylgdu leiðbeiningum í sambandi við lyfið og ef búrið virðist í fínu jafnvægi eftir ca 2 vikur getur þú bætt við fiskum.
Hér á spjallinu eru nokkrir þræðir um svipuð mál og þú ættir endilega að skoða þá til að fá meiri upplýsingar um svipuð mál.

Já, getur það gerst þegar maður setur svona mat ofaní? Það var mér ekki sagt! Er þá betra að láta þá bara svelta ef maður er að fara frá yfir helgi?
Annars er það að frétta að Gulli er enn á lífi, en er voðalega líflaus . Hann liggur ennþá í sömu stellingu og þegar ég fór að sofa í gær, sporðurinn er alþakinn hvítum blettum og það eina sem hreyfist á honum er munnurinn. Ef maður sæji það ekki þá héldi maður að hann væri dauður. Ætla að reyna að ná af þessu á eftir. Ryksuguna hef ég ekki séð.

Jæja, reyndi að ná mynd af Gulla:
Eins og sést þá er hann alþakinn hvítum blettum á sporðinum, auk þess er hann með hvíta bletti á búknum og einn stóran hvítan blett (eins og bólu) efst við tálknin hinummegin.
Fann ryksuguna í felum inní steini, ennþá lifandi. Gulli rétt svo tórir
Ef Gulli drepst, hvað þarf að líða langur tími þar til ég má fá aðra fiska? Í raun er ég búin að meðhöndla búrið kl 16 í dag þegar ég skipti vatninu að 80%, og flóran á að vera komin af stað aftur (komnir ca 36 klst frá starti).

Já það er miklu betra að láta fiskana "svelta" yfir helgi heldur en að setja svokallaðan helgarmat í búrin, flestir fiskar þola allt að viku svelti án vandræða og margar tegundir mun lengra svelti.
Ég mundi ekki bíða í minna en 2 daga með að bæta fiskum í búrið og reyndar tel ég betra að bíða lengur til öryggis fyrir nýju fiskana.
Ég mundi ekki bíða í minna en 2 daga með að bæta fiskum í búrið og reyndar tel ég betra að bíða lengur til öryggis fyrir nýju fiskana.
Já, það er skemmst frá því að segja að við fórum norður í sveitina og skildum fiskana eftir matarlausa.
Fórum snemma á föstudegi og komum seint á þriðjudegi og það er skemmst frá því að segja að fiskarnir 3 (2 gullfiskar og 1 ryksuga) voru hin sprækustu.
Fór í dag í Fiskó og bætti við 1 gullfisk í viðbót. Fór í gær og í dag í ónefnda gæludýrabúð í blómabúð og bakkaði út þegar sömu dauðu fiskarnir voru í búrunum tvo daga í röð...
Reyndar hafði ég nú ekki "leyfi" hjá krökkunum að gera þetta, þeir eru ennþá í sveitinni og ætla eftir helgi að fá fleiri fiska, en núna á ég einn fisk alein Þeir geta þá keypt 2-3 í viðbót áður en skólinn byrjar.