í dag þegar að ég vaknaði ákvað ég að fara að skoða smáauglýsingarnar í fréttablaðinu og tékka hvort það væri ekki eitthvað sniðugt til sölu eða gefins, rakst ég ekki á 350L búr með tunnudælu til sölu á 15 Þúsund svo ég hringdi og tekkaði á þessu, svo ég fékk að skoða gersemina þá var þetta bara hið fínasta búr mjög vel farið með með tunnudælu sem heitir EHEIM og hitara og svo 2 ljósum sem lýsa mjög vel í búrið og birtan dreifist fínt um búrið og skáp undir, þetta er semsagt Juwel búr svart á litið svo ég splæsti bara í þetta fína búr og er að snirta það til núna og þrífa tunnudæluna áður en að ég læt vatn í þetta svo mun ég koma með myndir seinna.
Last edited by Hafrún on 15 Dec 2007, 19:23, edited 1 time in total.
þetta er nátúrulega bara smekksatriði hvað skal hafa í búrinu, ég er að heillast af malawi síkliðum þessa stundina þær henta í þetta búr ef þú vilt mikla litadýrð í búrið þitt
sko ég vil nefnilega hafa mikið af lit og fallegum litum í búrinu en vil samt hafa það þannig að fiskarnir hætta næstum aldrei að stækka og ég vil helst hafa svona fiska sem er með mikinn persónuleika...
Til hamingju með búrið, alltaf gaman að lenda á svona
Ef þú ert að leita eftir einhverju með sterkan personuleika þá myndi ég skella í þetta óskar, convict síkliðu, firemouth og kannski einn jack dempsy mjög mikillir karakterar í þessum gaurum og svo upp á lookið skella í þetta meðal stærð af rót, bakgrunn, 3D ef veskið leyfir annars bara venjulegan sem fer bakvið glerið
Hvaða týpa af Eheim dælu er þetta ?
Og ég held að ég tali fyrir alla hérna, endilega koma með myndir af öllu!!! sem fyrst það dýrka allir myndir hérna
jæja núna er ég búin að vera að taka myndir af búrinu og tunnudælunni sem ég get sett hér inn.
Þetta er semsagt tunnudælan:
svo er þetta það sem stendur ofan á tunnudælunni semsagt eheim, ég veit ekki hvaða önnur tegund þetta er en eheim, það stendur bara ekkert annað en eheim á henni svo ef þið vitið hvernig tegund þetta er þá megið þið endilga láta mig vita:
svo er þetta mynd af búrinu í heild:
en ég er semsagt á fullu að þrífa það núna en var að láta renna í það smá í gær og setti soldinn sand ætla setja meiri sand í dag og ætla að klára að láta vatn í það og setja allt í gang og láta ganga í nótt svo að ég geti farið og keypt mér íbúa í það en ég held að ég ætla að skella mér í afrískar síkliður (tanganyik) eða (malawi)...
Last edited by Hafrún on 12 Aug 2007, 14:25, edited 3 times in total.
Þetta er 300 l búr en ekki 360. Ef maður vill vita hvað búrið tekur marga lítra þá mælir maður innanmálið sem er þá ca. 118x48x53cm.
Flestir sem selja búr, sérstaklega heimasmíðuð gefa yfirleitt upp utanmálið og reikna lítrafjöldan útfrá því og þá getur munað ansi miklu.
hehehe óóóóóóó mér var sakt að reikna þetta svona sem ég gerði hehehehe mér fannst þetta líka soldið skrítið var akkuratt að skoða heimasmíðað 340 L í dag á vinkonu minni og mer fannst það eitthvað skrítið hvað hennar búr var lengra en mitt heheh
já ég var akkuratt að pæla í annað hvort tanganyika eða malawi, er að fara að skoða fiska ámorgun, en er semsagt búin að fylla búrið og setja steina, gróður og stóran pott og nú er það bara að fara að taka mynd og setja inná hehehehe...
mér líst ekki nógu vel á allar þessar afrísku síkliðu pælingar hjá ykkur
Annars er ég að selja 5 stykki Metriaclima estherae (aka red zebra) ef þú hefur áhuga
jæja það eru komnir 2 convictar í búrið þar sem að þeir voru í 50 L voru þeir orðnir nokkuð stórir fyrir 50 lítrana svo að ég skelti þeim í nýja búrið, en það var ekki komin nema 21° en svo var é að lesa að convictar lifa i 20-36° svo þetta ætti að vera í lagi. kk er alveg ennþá í sjokki liggur bara í horninu og glápir á mann þegar að maður gengur fram hjá búrinu en kvk er svo spræk og syndir úr um allt og er ekkuratt núna að kanna blómin og kroppar soldið í þau
Ef maður er með góða hreyfingu á yfirborðinu frá tunnudælu eða öðrum dælum þá er engin þörf á loftdælu. Það er þó í góðu lagi og mörgum þykir fallegt að hafa bubblewall eða eitthvað loftvesen í búrinu hjá sér