Í gærkvöldi var ég aðeins að horfa á búrið mitt og fylgdist með fiskunum mínum, en þá sá ég ekki einn skalann minn og byrjaði aðeins að leita á bakvið steina en fann hann ekki , þá hefur hann sennnilegast dáið og aðrir fiskar í búrina hafa étið hann.
Annars þá á ég 360 lítra búr og 50 lítra búr sem ég notaði í það að rækta guppy en 360 lítra búrið nota ég ekki í að rækta neitt. Ég var búinn að gera samning við fiskabúðina á akureyri að þeir mundu kaupa guppy-ina af mér sem komu í heiminn og svo einn daginn ætlaði ég að láta einhverniginn svartan stein ofaní búrið, sauð hann auðvitað fyrst. Nokkrum dögum seinna voru allir guppy-arnir dauðir Þá hefur þessi steinn sennilegast borið með sér sýkingu í búrið en ég hélt samt að ef að maður sýður steina þá á ekki að koma sýking, er það ekki rétt hjá mér?????
Hvernig steinn var þetta?
Það má vera að einhver efni í steininum hafi losnað og drepið eða hreinlega eitthvað annað hafi drepið fiskana því þú segir að þetta hendi nokkrum eftir að steinninn fari í.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Mér finnst líklegt að Ásta hitti naglann á höfðuðið að í steininum hafi verið eithvert efni sem hefur drepið fiskana ef steininn heftur yfir höfuð haft eithvað með þetta að gera. Ef þú hefur soðið steininn og vatnið náð að fljóta alveg yfir hann ætti engin sýking eða sníklar að hafa lifað það af.