Co2 spurningar
Moderators: Vargur, prien, Sven, Stephan
Co2 spurningar
Er búinn að vera bralla aðeins með gróður í búrinu hjá mér, með ekki nógu góðum árangri svo ég bætti við diy co2.
en nú hef ég verið að spá hvort sé betra að vera með diffuser sem safnar gasinu eða sem gerir littlar loftbólur
Og er e-ð annað sem ég get gert til að fá meiri vöxt í búrið er með 15w t8 og um 15w af led, er svo að gefa tetra plantamin

Birgir Örn
Re: Co2 spurningar
Það skiptir ekki öllu máli hvernig diffuserinn er ef loftbólurnar leysast upp áður en þær ná að yfirborðinu. Passaðu bara að setja ekki of mikla næringu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Co2 spurningar
http://www.jbl.de/en/aquatics-freshwate ... fun-extend
Þessi er til í Fiskó að mig minnir á viðráðanlegu verði
Þessi er til í Fiskó að mig minnir á viðráðanlegu verði
Re: Co2 spurningar
ég er með svona gler diffuser eins og seinni myndin sem ég setti inn, ætti ég þá að skipta honum út?
Birgir Örn
Re: Co2 spurningar
ég myndi nota þennan gler diffuser áfram
Re: Co2 spurningar
áþekkt viðfangsefni, svo ég vona að ég sé ekki að afvegaleiða þennan ágæta þráð.
En hvað með litlu plastjúnitin sem fást m.a. í Dýraríkinu, sem maður setur töflur í til að veita co2 í búrið? Er það praktískt og virkar vel? Eða er hér um reddingu að ræða sem kostar of mikið (kaup á nýjum töflum) þegar litið er til lengri tíma?
Þess ber að geta að ég er ekki með skáp undir mínu búri sem torveldar að koma fyrir kútum, tunnum og öðrum fyrirferðarmeiri græjum.

Það eru til litlir 500gr kútar sem endast vel í nokkra mánuði á áfyllingu og líta bara vel út hliðina á standinum
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Re: Co2 spurningar
Er þessu beint til mín? Ef svo er, viltu setja inn myndir, verð o.fl. svo ég geti kynnt mér þetta betur? Ég geri ráð fyrir að þetta sé græja sem Dýralíf er með.Squinchy wrote:Það eru til litlir 500gr kútar sem endast vel í nokkra mánuði á áfyllingu og líta bara vel út hliðina á standinum
Re: Co2 spurningar
Pantaði þetta sett nr.2 í gróður búrið sem er í Dýralíf Co2 fyrir 200L búr, Co2 fyrir 500L búr, pantaði mér einnig svona 500g kút fyrir bjórdælu sem ég var með í stofunni
smekklegur kútur þegar límmiðinn er farinn af
Man ekki hvað þetta sett kostar, get kannað það í næstu heimsókn í Dýralíf
smekklegur kútur þegar límmiðinn er farinn af
Man ekki hvað þetta sett kostar, get kannað það í næstu heimsókn í Dýralíf
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Re: Co2 spurningar
Jökull, er svona sett til fyrir 85 L búr og hvað kostar það? Er hægt að kaupa áfyllingar?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr