400L malawí búr... möl? - Edit: myndir komnar :)

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

400L malawí búr... möl? - Edit: myndir komnar :)

Post by iriser »

Jæja, er búin að taka ákvörðun og ætla að setja upp Malaví síklíðubúr :)
Búirð er orðið tilbúið og ég ætla að fara á morgun og kaupa möl. Er búin að tína grjót úti til að setja í og á bara eftir að þvo þá.
Hvað þarf ég mikla möl? Held þeir selji þetta í 20 kg pokum. Og já hvaða möl er best? Ætla að hafa dökka möl.
Ætla að fara í þetta allt á morgun og vonandi setja vatnið í annað kvöld :D
Last edited by iriser on 15 Aug 2007, 14:45, edited 1 time in total.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Hvernig er svona möl?
Image
Er þetta ekki bara fínt?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta er heldur gróft.
Keyptu frekar svokallaða steypumöl í Bm vallá eða leikvallaperlu í Björgun.
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Takk takk ;)
Geri það!
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Búin að kaupa mölina og hún komin í búrið. Ekkert smá flott :D
Er þetta ekki nóg? Þetta er einn 40 kg poki en ég keypti 2 :?
Það er eflaust of mikið að bæta heilum poka við í viðbót.

Svo er það bara að setja grjótið í og fylla af vatni :D

Hér eru myndir
Image
Búrið eins og það er núna

Image
Og hér sést þykktin á mölinni

Rosa flott að hafa skeljarnar í með :) Bara akkurat eins og ég vil hafa það! Takk fyrir ábendinguna :)
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er ekkert ákveðið hvað á að vera mikið af möl, bara smekksatriði.
Ef þú ætlar að setja stóra steina og síkliður í búrið skaltu passa þig á að leggja ekki steinana ofan á mölina heldur að reyna að grafa þá aðeins niður því síkliðurnar eiga það til að grafa undan og þá gæti steinninn dottið á glerið.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það borgar sig ekki að setja meira af möl. Of þykkt lag og þá gætu óloftháðar bakteríur farið að lifa í henni sem eru alls ekki æskilegar í ferskvatnsbúr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Takk fyrir svörin ;) Mér finnst þetta líka fín þykkt. Fer svo að þrífa grjótið, setja það í og svo bara vatnið í :D Gott að vita þetta að láta grjótið vel ofan í mölina, geri það ;)
Mölin lofar amk góðu, þetta verður magnað flott :D
iriser
Posts: 87
Joined: 27 Jul 2007, 14:36

Post by iriser »

Jæja, er búin að setja upp búrið og fiskar komnir í :) Endalaust gaman :D
Fór í fiskabúr.is í gær og keypti 8 fiska, 3 Kingzeise (1 kall og 2 kellur) og 5 af annarri tegund sem ég man ekki hvað heitir en rosa flottir.
Hér eru nokkrar myndir af fiskunum. Á eftir að redda mér betri perum í búrið og þá tek ég heildarmynd ;) Nokkrar af myndunum voru teknar áður en ég setti bakgrunninn í.
Image
Image
Image
Image
Image
Image

Allt ungir fiskar sem eiga vonandi eftir að eiga heima hjá mér lengi og verða mun stærri og flottari :D
Post Reply