Fiskabúrasmíði
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Fiskabúrasmíði
Er að fara að panta gler til að setja saman búr sjálfur. Smíða standinn líka. Ætla að nota þennan þráð fyrir spurningar varðandi þetta project.
Þegar glerið er komið og það kemur að kíttun, veit ég að hægri og vinstri hliðarnar eiga að fitta á milli framhliðar og bakhliðar, en eiga allar hliðar að vera ofan á botnplötunni, eða á botninn að skorðast á milli framhliðar og bakhliðar? Hef heyrt af því að hvort tveggja virki, en ákvað að spyrja ykkur reynsluboltana samt, hvort hafið þið verið að gera?
Búrið er 180x120x60cm (lengd, breidd, hæð) sem samsvarar 1296L.
Ætla að hafa tvær Eheim 2262 dælur á búrinu.

Last edited by Jakob on 27 Jun 2014, 17:25, edited 1 time in total.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Að kítta fiskabúr?
Öll góð ráð og tips eru vel þegin, hvað ætti að forðast o.s.frv.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Að kítta fiskabúr?
Ég myndi hafa botnglerið innan í það er að mínu mati mun flottara. Hvað ertu með þykkt gler í þessu ? og hvað kostar gleirð ef ég mætti spyrja ?
Re: Að kítta fiskabúr?
12mm gler, ég veit ekki hvað það kostar nákvæmlega, vantaði svarið við spurningunni til að geta sent glerverksmiðjum málin á plötunum.snerra wrote:Ég myndi hafa botnglerið innan í það er að mínu mati mun flottara. Hvað ertu með þykkt gler í þessu ? og hvað kostar gleirð ef ég mætti spyrja ?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Flott eða ekki flott, aðalmálið er að þetta haldi.
Þá eru glerplöturnar fimm talsins:
1800mm x 600mm (framhlið)
1800mm x 600mm (bakhlið)
1176mm x 588mm (hægri)
1176mm x 588mm (vinstri)
1800mm x 1176mm (botn)
Þá eru glerplöturnar fimm talsins:
1800mm x 600mm (framhlið)
1800mm x 600mm (bakhlið)
1176mm x 588mm (hægri)
1176mm x 588mm (vinstri)
1800mm x 1176mm (botn)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Á Akvastabil 720 búrinu mínu eru gaflarnir líka utan yfir eins og fram og afturhliðin Allt límt utan um botninn Ég ætlaði að láta breikka það í 800mm en þá hefði glerið þurft að vera 20mm að þeirra sökn og búrið með ljósi kostað 700 þús
Re: Fiskabúrasmíði
Mæli sterklega með því að hafa botninn í miðjunni og gaflana á milli fram og bakhliðanna. Svo mæli ég með því að hafa amk 2mm bil á milli glerja fyrir límingu. Það þýðir að framhlið og bakhlið eru í fullri stærð, botn er 12 + 12 + 2 + 2 mm (=28mm) minni en lengd og breidd á búrinu og hliðarplötur eru jafn breiðar og botnplata og jafn háar og fram og bakhlið. Mér sýnist það ekki standast í málunum sem þú gefur upp hér að ofan
Notaðu svo almennilegt kítti í þetta, sem er merkt til notkunar í fiskabúrum. Silirub AQ hefur reynst mér vel en því miður sjaldan til í öðru en glæru.
Ég hef venjulega notað haug af málningarteipi og tannstöngla eða eldspýtur til að stilla búrinu upp. Það borgar sig að vera amk 2 í þessu verkefni, sérstaklega með svona stórt búr. Svo tekur maður eldspýturnar úr jafn óðum á meðan maður kíttar. Mæli með því að þrífa með t.d. geisla cellulósa þynni fyrir kíttingu, setja svo búrið saman með hreina (nýja) hanska til að setja ekki fitu á límfleti.
Ef einhverjar aðrar spurningar, endilega skjóttu
p.s.
Það segir sig kannski sjálft, en það er mikilvægt að hafa mjög sléttan flöt undir búrinu þegar maður límir. Einnig sterkur leikur að hafa plast undir búrinu, því annars límirðu búrið sennilega við slétta flötinn Leyfa búrinu að standa í amk sólarhring áður en maður snertir það eftir límingu.

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Takk fyrir góð ráð.keli wrote:Mæli sterklega með því að hafa botninn í miðjunni og gaflana á milli fram og bakhliðanna. Svo mæli ég með því að hafa amk 2mm bil á milli glerja fyrir límingu. Það þýðir að framhlið og bakhlið eru í fullri stærð, botn er 12 + 12 + 2 + 2 mm (=28mm) minni en lengd og breidd á búrinu og hliðarplötur eru jafn breiðar og botnplata og jafn háar og fram og bakhlið. Mér sýnist það ekki standast í málunum sem þú gefur upp hér að ofan
Notaðu svo almennilegt kítti í þetta, sem er merkt til notkunar í fiskabúrum. Silirub AQ hefur reynst mér vel en því miður sjaldan til í öðru en glæru.
Ég hef venjulega notað haug af málningarteipi og tannstöngla eða eldspýtur til að stilla búrinu upp. Það borgar sig að vera amk 2 í þessu verkefni, sérstaklega með svona stórt búr. Svo tekur maður eldspýturnar úr jafn óðum á meðan maður kíttar. Mæli með því að þrífa með t.d. geisla cellulósa þynni fyrir kíttingu, setja svo búrið saman með hreina (nýja) hanska til að setja ekki fitu á límfleti.
Ef einhverjar aðrar spurningar, endilega skjóttu
p.s.
Það segir sig kannski sjálft, en það er mikilvægt að hafa mjög sléttan flöt undir búrinu þegar maður límir. Einnig sterkur leikur að hafa plast undir búrinu, því annars límirðu búrið sennilega við slétta flötinn Leyfa búrinu að standa í amk sólarhring áður en maður snertir það eftir límingu.
Fer að byrja að smíða standinn núna í júlí, og ætlaði að smíða hann úr 2x4" og klæða með krossviðarplötum. En svo datt mér í hug hvort það væri öruggara að láta smîða bara stand úr stáli. Væri það ekki mun dýrara? 2x4 er að kosta um 400kr/m í húsasmiðjunni, ætla að teikna upp standinn í sketchup í vikunni. Borgar það sig ekki að smíða standinn úr við heldur en að láta smíða stálgrind sem stand?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Bara eftir því hvað hentar. Mikið meira pláss inní standinum ef hann er úr stálprófílum, en það er dýrt að smíða hann ef þú þarft að borga einhverjum fyrir að gera það. Myndi svo skoða að kaupa timbur í bauhaus, það var töluvert ódýrara þar en í byko og húsasmiðjunni seinast þegar ég bar verðin saman.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Já vissi af því að það væri töluvert ódýrara í bauhaus.keli wrote:Bara eftir því hvað hentar. Mikið meira pláss inní standinum ef hann er úr stálprófílum, en það er dýrt að smíða hann ef þú þarft að borga einhverjum fyrir að gera það. Myndi svo skoða að kaupa timbur í bauhaus, það var töluvert ódýrara þar en í byko og húsasmiðjunni seinast þegar ég bar verðin saman.
Ætla þá að smíða þetta úr timbri bara, miklu skemmtilegra að hafa project, vinna þetta sjálfur. Set mynd af hönnun standsins inn í vikunni, til að bera þetta undir ykkur.
Ætla að keyra búrið á tveimur eheim classic 2262, ein dæla er sett á 1000l, mikið pláss fyrir filtermediu. Það ætti að vera feykinóg er það ekki?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Hvað er planið á að fylla þetta af gróðri , Afíku síklíður eða ?
Re: Fiskabúrasmíði
Skötursnerra wrote:Hvað er planið á að fylla þetta af gróðri , Afíku síklíður eða ?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Myndi reyna að koma aðeins dýpra búri fyrir... Munar t.d. slatta um 180x60 og 180x80 gólfflöt fyrir þær. Ég var með 530l akvastabil búr þegar ég var með mínar og fannst það of lítið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Ég veit það vel, búrið væri 80cm á dýpt ef það vildi svo vel til að það hentaði. Búrið getur ekki verið dýpra, annars kemst það ekki inn um dyrnar upp á rönd. Er ekki að fara að brjóta niður veggi fyrir búrið.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Ok, hafðu það þá bara 50cm hátt, en 80cm breitt
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Af hverju segiru það? Tel það vera mun betra að hafa það 120 á breiddina og 60 á hæðina
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
180 x120 60 er ekki 12mm gler of lítið ?
Re: Fiskabúrasmíði
Smá brainfart, mér sýndist að búrið ætti að vera bara 60cm breitt
Það er s.s. 180x115 flötur? ~1200 lítrar? Það ætti að duga skötugreyjunum eitthvað.
Það er s.s. 180x115 flötur? ~1200 lítrar? Það ætti að duga skötugreyjunum eitthvað.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Jebb það mun duga nokkuð lengi. En hvernig er það með akríl (acrylic), mun léttara, en er það ekki margfalt dýrara en venjulegt gler?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Re: Fiskabúrasmíði
Jú dýrara, ólíklegt að þú getir límt það sjálfur og svo er leiðinlega auðvelt að rispa það..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Re: Fiskabúrasmíði
Ég var alveg búinn að velta því fyrir mér að smíða úr krossvið, en ákvað að nota frekar glerið. Ekki jafn gaman að hafa bara glugga á búrinu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.