Jæja kominn tími til að hella sér útí þetta sport aftur.
Er búinn að vera með 90l rena í 6 ár núna og fannst tími til kominn að stækka aðeins við mig.
Ég datt inná þetta ágæta 180l juwel búr og ákvað að fara rólega af stað með þetta búr og taka mér góðan tíma í að skoða og ákveða hvað ég ætlaði að hafa í því. Þegar þetta er skrifað eru fyrstu íbúarnir nýkomnir í búrið en ég startaði því fyrir 2 vikum síðan.
Svona lítur það út í dag en á eftir að breytast yfir næstu vikur.
Eftir um viku keypti ég rótina og valisneruna og setti í búrið, rótin fór reyndar í sólarhrings bað og sturtu til þess að losa um mest ryk og eithvað af litnum, hún litar reyndar enn í dag sem kemur svosem ekki á óvart en mun minna en hún gerði í baðinu.
Valisneran dafnar vel þrátt fyrir að vera þakin þörungi, er að bíða eftir SAE sem kemur vonandi um helgina til þess að narta aðeins í þörunginn er einnig búinn að takmarka ljóstíman og vona að hann minnki á næstunni.
Því til stuðnings þá eru komin tvö afsprengi á aðeins 2 dögum sem kom mér reyndar pínu á óvart verð ég að viðurkenna. Læt mynd af einu afsprengi fylgja.
Setti niður með valisneruni Plant starter og crypto held ég að það heiti bæði töflur, mistökin sem ég gerði var líklega að setja fljótandi næringu í búrið, (átti það til og skellti því í búrið áður en hitt var keypt og ég las mér meira til um plöntuna)
Fyrstu íbúarnir voru 2 ancistrur sem fengu nett víðáttubrjálæði þegar þær komu úr pínulitlu fiskabúðsbúrinu og í 180l búrið.
Íbúi 1
Íbúi 2
Báðar eru um 2 cm og líður bara þokkalega í búrinu að mér sýnist.
Framtíðarplön eru ekki alveg 100% ákveðin en til að byrja með þá eru það SAE, var að hugsa um skala en hef ekki kynnt mér þá samsetningu með núverandi íbúum og SAE. Á einnig eftir að setja bakgrunnin á. Bakvið rótina verða svo fleirri valisnerur sem ég ætla að reyna að rækta úr þessari sem er nú þegar(gengur helvíti vel eins og er )
Mér þætti gaman að fá feedback frá fróðari mönnum en mér um samsetningu þeirra íbúa sem ég taldi hér að ofan, miðað við lestur þá ætti það að vera í lagi, en meiri upplýsingar eru alltaf betri og einnig ef það er eithvað meira sem ég get gert varðandi þaran á plöntunni þá má endilega skjóta þeirri hugmynd á mig
180l Juwel í vinnslu
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Re: 180l Juwel í vinnslu
ég er með skala SAE anchistrur og miklu fleira í búri og gengur vel
Re: 180l Juwel í vinnslu
Hvað ertu með stórt búr?nesquick wrote:ég er með skala SAE anchistrur og miklu fleira í búri og gengur vel
84l. Rena
- Agnes Helga
- Posts: 1580
- Joined: 18 Nov 2006, 14:05
Re: 180l Juwel í vinnslu
Ættir alveg að geta verið með amk par af skölum í þessu búri
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Re: 180l Juwel í vinnslu
er með þetta í 200l búri
Re: 180l Juwel í vinnslu
Hvernig lítur þétta út núna, eitthvað nýtt ?