Eftirfarandi fylgir með:
Koslýrukútur 2KG (held að hann sé nánast fullur)
Þrýstijafnari
Segulloki sem er hægt að tengja á tímarofa til að slökkva á kerfinu á nóttunni.
Loftbóluteljari
2 einstreymislokar úr málmi (einstreymislokar úr plasti skemmast fljótt í mikilli snertingu við CO2)
Mjög góður diffuser til að tengja inn á slöngu úr tunnudælu (eða annari dælu)
Eitthvað smotterí af CO2 slöngum (ætti að duga til að tengja kerfið).
Verð 30.000
Fyrir ásættanlegt boð getur kaupandi mögulega fengið brauðristina með.
[TS] Koslýrukerfi - SELT
Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli
Re: [TS] Koslýrukerfi
Blessaður. Langt síðan síðast! Er needle valve á þessu? Veistu hvort þrýstijafnarinn er „single stage“ eða „dual stage“ ?
Re: [TS] Koslýrukerfi
Já, það er needle valve á þessu.
Ég skal reyna að komast að því hvort þetta sé single eða dual stage. Hver er annars munurinn?
Ég skal reyna að komast að því hvort þetta sé single eða dual stage. Hver er annars munurinn?
Re: [TS] Koslýrukerfi
Tvær túður til að hindra að útþrýstingurinn verði skrýtinn þegar það fer að verða lítið eftir í kútnum (eins og ég skil þetta)
Re: [TS] Koslýrukerfi
Hér er hlekkur á þennan þrýstijafnara: http://www.greenaqua.hu/en/papillon-pre ... lator.html
Re: [TS] Koslýrukerfi
Þetta er eflaust gæðasmíði, enda þýsk. Ég tek þetta á uppsettu ef sendingin suður til Reykjavíkur er innifalin
Verandi af landsbyggð sjálfur þá veit ég að menn vita alltaf um einhverjar ferðir!
Ef ég skil þetta rétt þá fer solenoidinn bara í venjulega innstungu þannig að ég geti haft hefðbundinn timer á honum, co2 slangan í stóra rörhólkinn sem fer á útganginn á tunnu og hnéð er þar sem vatnið kemur út? En hvert fer T-ið?

Ég skal bara keyra þetta heim að dyrum hjá þér, enda er ég í Reykjavík, sýni þér svo í leiðinni hvernig þetta púslast allt saman
Re: [TS] Koslýrukerfi
Sven wrote:Ég skal bara keyra þetta heim að dyrum hjá þér, enda er ég í Reykjavík, sýni þér svo í leiðinni hvernig þetta púslast allt saman