Sælinú,
ég er með lítinn læk sem gengur í gegnum sumarbústaðarlandið, mikið um sef og gróður en lítið um líf. Ég var að láta mig dreyma um að prófa að setja fiska þarna í til að gleðja börnin. Hafið þið reynslu af svona tilraunum? Hvar getur maður keypt seiði sem krefjast ekki upphitunar á vatni?
Óska eftir seiðum í íslenskan læk
Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli
Re: Óska eftir seiðum í íslenskan læk
takk ég var einmitt að tala við vitra menn í gæludýrabúðum og þeir mæltu með gullfiskum þannig að ég er spennt að prófa þá gaura. Eina sem ég var að pæla í er hvort það sé nokkur möguleiki á að þeir 'mengi' út frá sér. Minn lækur rennur nefnilega út í laxá sem selt er inn á. Verða menn nokkuð brjálaðir ef þeir fara í laxveiði og veiða gullfisk? Kannski bara glaðir?
Re: Óska eftir seiðum í íslenskan læk
Laxakarlarnir verða brjálaðir. Þeir eru nógu brjálaðir þega eldisfiskur slæðist í ánna, hvað þá gullfiskur.
Þú gætit reynt að velja þér dökka fiska sem eru ekki jafn áberandi ef einhver rekur augun í þá.
Endilega póstaðu hér einhverju um þetta ef þú lætur verða af þessu.
Þú gætit reynt að velja þér dökka fiska sem eru ekki jafn áberandi ef einhver rekur augun í þá.
Endilega póstaðu hér einhverju um þetta ef þú lætur verða af þessu.
Re: Óska eftir seiðum í íslenskan læk
Alveg endilega ekki sleppa fiskum út í náttúruna, allt í lagi í lokaða tjörn en ekki í opinn læk!
Re: Óska eftir seiðum í íslenskan læk
ég fór eftir ábendingum og breytti. lét grafa fyrir góðri tjörn í staðinn, varð líka dýpri en lækurinn og fiskarnir voða glaðir. Eina vandamálið er spóinn (held það sé helst hann frekar en aðrir mófuglar) sem heldur að ég sé með hlaðborð. þeir voru 4 fiskarnir en svo tveim tímum síðar voru þeir allt í einu 3. Þarf sennilega að strengja band yfir sennilega. Vitið þið nokkuð hverjir eru að selja 'ódýra' fiska t.d. bleikju eða gullfiska?