Ég fór í Dýragarðinn áðan, ógó ánægður að sjá að það voru komnar arowönur sem ég var búinn að bíða eftir í einhverja mánuði. Það fyrsta sem kom á innkaupalistann þegar ég ákvað að fá mér stærra búr var arowana, þannig að ég keypti eina mjög fallega undir eins.
Tók mér góðan tíma í að aðlaga hana og svona, var í meira en klukkutíma að bæta vatni í pokann og svona.
Svona leit hún út eftir 20-30mín í búrinu:
10þús í klósettið þarna og walking catfish orðinn töluvert feitari.
clariasinn er ekkert stór, kannski 2-4cm stærri en arowanan og náttúrulega miklu feitari.
Ég sá ekki hvort hann hafi vaðið beint í hana, en mig grunar að arowanan hafi farið eitthvað á botninn eins og fiskar gera oft þegar þeir eru nýjir í búri og clarias hafi bara vaðið í hann...
clariasinn hefur aldrei verið til vandræða áður, og oft fengið miklu minni fiska í búrið til sín.
En svona í alvöru talað, vill einhver clarias gefins - þarf að sækja í kvöld helst.
ég gæti alveg losað þig við WC ef honum er óhætt með öðrum stærri ?
edit: svona þegar hugsa aðeins betur úti það þá er ég með arowönu i sömu stærð, kannski ekki sniðugt að henda honum úti ef hann væri líklegur til að gera það sama.
Hann er allavega saddur núna.. og var svangur þegar arowanan fór í.
Þessi fiskur hefur aldrei verið til vandræða áður.. Fatta þetta ekki alveg... Gæti svosem vel verið að einhver annar hafi ráðist á hana og hann svo bara fengið sér bita.
530 lítra búr, með ungum suður amerískum síkliðum (allar undir 10cm og töluvert minni en arowanan), citrinellum, flowerhorn, green terror, trúðabótíur og eitthvað smotterí í viðbót.
gefðu að éta um leið og þú sleppir henni( annar staðar í búrið )þá hafa fiskarnir um eitthvað annað að huxa svona rétt á meðan hún áttar sig og fylgdstu vel með öllu ,gangi þér vel
Clariasinn lítur út fyrir að vera bara sáttur við nýa heimilið, setti hann í 600L búrið, hann var mjög vinsæll strax eftir að hann kom útí og var elt hann lengi af hinum sem voru mjög forvitnir að sjá þennan fisk þjóta um búrið
Og er strax búinn að finna sér hellir sem hann chillar í
Vá fúllt , verður bara að fá þér lítið búr 54L eða eitthvað álíka og hafa hana með einhverjum gúbbum/kardenálum og bara fita hana vel! áður en hún fer í aðal búrið
Þá mátt alveg fá wc aftur ef þú vilt, er með tvo auka hérna heima hehe
Mikið djö.. vorkenni ég þér Keli. Tvær Arowönur farnar
Maður finnur til bara með þvi að lesa þennan þráð.
Ef þú prófar aftur þá skaltu ala hana upp i öðru búri á kjöti og rækju þannig að hún verði fljót að stækka. Min fór úr 8 cm og i 34 cm á aðeins 4 mánuðum svo þær geta stækkað ört.
Frekar spældur með þetta... Næsta tilraun verður á þann veg að ég ætla helst að fá stærri arowönu, og taka allar síkliðurnar úr búrinu og leyfa henni að vera einni í búrinu, byrja að éta og svona og bæta svo fiskunum svo aftur í eftir viku eða svo, þegar ég er búinn að breyta öllu í búrinu. Sleppi líklega flowerhorninum samt - gef hann eða eitthvað