fiðrildasikliður að unga ut !!

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
valla
Posts: 45
Joined: 30 Jul 2007, 00:54

fiðrildasikliður að unga ut !!

Post by valla »

hæhæ
er með fiðrildasikliðu par sem var að unga ut og svo for kallin i það nuna að týna hrognin af steininum ? er hann að éta hrognin eða hvað er hann að gera...
hef aldrei verið með fiðrildapar sem er að hrygna ???
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

hann er líklegast að færa þau á öruggari stað
valla
Posts: 45
Joined: 30 Jul 2007, 00:54

Post by valla »

en hvað tekur langan tima að koma ungar og hvenær ma fara að gefa þeim mat, og hvað a maður að gefa þeim.
kv valla
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

fiskar færa venjulega ekki eggin, hann er líklega að éta úldnu eggin, eða bara éta öll - það gerist oft fyrst fyrir nýja foreldra. Hinsvegar ef eggin eru komin á kviðpokastig þá geta þeir fært þau.

Egg klekjast út á 2-4 dögum og komast þannig á kviðpokastig sem varir í 2-4 daga í viðbót og svo eru þau farin að synda og þurfa mat.
Last edited by keli on 23 Aug 2007, 00:01, edited 1 time in total.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

að unga ut heitir í þessu tilfelli að hrygna eins og þú segir síðar í póstinum.
ungar heita seiði.

Ef þetta var að ske þarftu að bíða í 3+ daga og þá koma lítil seiði með kviðpoka. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af mat á næstunni nema þú takir þau frá en þá getur þú mulið venjulegar flögur fínt eða keypt sérstakt fíngert seiðafóður.
Einnig er hægt að fá frosið fóður í sumum gælud.versl. en það er frekar dýrt.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Þegar að seyðin fara að hreyfast inní hrognunum þá færa mínir fiskar oftast hrognin ofaní einhverja holu eða á öruggari stað
Það er mín reynsla á þessu
Post Reply