Rauðir blettir á uggum

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Rauðir blettir á uggum

Post by Andri Pogo »

Tók eftir rauðum blett á einum Clown knife hjá mér áðan og viti menn, hinir tveir eru líka með þessa bletti á öllum uggum.
Svo eru uggarnir eitthvað tætingslegir á þeim, veit ekki hvort það sé hluti af þessu... Sé ekkert þessu líkt á öðrum fiskum búrsins.

Vitiði hvað þetta er og hvað skal gera?

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Gæti trúað þeir hafi verið að slást eða einhver að bögga þá allavegana hefur eitthvað gengið á það sjást fleiri ummerki um hasar á myndunum. Fylgstu vel með þessu uppá efað kemur sýking í þetta :shock:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þetta eru ekki sár, virðist vera einhver baktería. Annars er enginn að abbast uppá þá, rispurnar hafa þeir fengið eftir að troða sér undir rótina og stökkva uppí lokið.

ég er allavega búinn að skipta um 40% vatn og er byrjaður að salta í von um að það hjálpi.
Veit ekki hvað þetta er en mig grunar svosem að ástæðan sé léleg vatnsgæði enda búrið að springa. Nýja búrið á að vera komið en það er týnt einhverstaðar hjá innflutningsfyrirtækinu :x
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Væntanlega rispur eftir hnjask sem er kominn bakteríusýking í fáðu þér bakteríudrepandi lyf ef þetta lagast ekki við vatnsskipti og salt, ekki bíða of lengi ef þetta lagast ekki mjög fljótlega við v.skiptin og saltið
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já það sem ég meinti var að þessir blettir eru bara á uggunum og ekki á neinum sárum, bara rauðir kringlóttir blettir. Þeir eru hins vegar með rispur á fleiri stöðum sem líta ekkert illa út.

ég vil bara vera 100% viss hvað þetta er og hvort salt sé nóg áður en ég set lyf í búrið, vil ekki lenda í slátrun einsog gerðist í 110l búrinu eftir að ég lét lyf í það.
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Á myndunum get ég ekki betur séð en að rauðu dílarnir séu þar sem er brot í uggageislunum sem þýðir að þetta er blóð sem hefur storknað í sárinu......... fylgstu vel með hvort það kemur fungus eða áta í uggann
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

sýnist vera smá í sporðinum líka :/ hef aldrei séð þetta... því miður.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já þetta er á öllum uggum, ofan og neðan :?
ég verð bara að sjá til hvernig fer næstu daga fyrst ég er buinn að salta.

á að líða einhver ákveðinn tími þar til ég skipti um vatn eftir söltunina ? eða bara eftir viku einsog venjulega?
-Andri
695-4495

Image
Post Reply