Sjálfskynning

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Sjálfskynning

Post by magnum »

Ég heiti Magnús og er búsettur á Ólafsfirði.
Ég er búinn að vera með fiskadelluna í 30 ár.
Er með um 300L búr í gangi núna.
Image
Í búrinu eru tveir Oskarar kerlingin 23cm og karlinn eitthvað minni.
1 pleggi , 1 26 ára gamall Striped Raphael og einn einmana skalli.
Oskaraparið er búið að hrygna reglulega í 1 1/2 ár og ég var viss um að þetta væru tvær kerlingar þar sem hrognin eyðilögðust alltaf.
En svo fyrir svona mánuði síðan var ég að setja matarsóda útí búið til að herða vatnið. Dagin eftir hringdu þeir og það var líf í öllu.
Daginn eftir voru pleggin og baksyndarinn (einhver Synodontis tegund) búnir að éta allt.
Svo ég beið bara þolimóður eftir næsta goti og það kom hálfum mánuði seinna.
Image
og ég náði því öllu.:D
Image
Þess vegna er plastkassinn í endanum á búrinu.
Nú er bara að krossleggja putta og tær og vona að halda lífi í þessum ungum.
Ungarnir eru farnir að taka artemíur og þetta lítur ágætlega út.
Last edited by magnum on 11 Dec 2006, 13:43, edited 1 time in total.
ragz
Posts: 84
Joined: 16 Oct 2006, 15:18

Post by ragz »

Nohh til hamingju með þetta! Þetta hljóta að vera alveg 100-150 seyði allavega er það ekki? Gangi þér vel með þetta :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Velkominn á spjallið Magnum.
Þetta er glæsilegt búr og gaman að heyra af Íslenskum Óskara seyðum, það eru ekki margir sem hafa náð að ala undan Óskar hér á landi.

Verður þú ekki að fá þér búr fyrir seyðin ?
Áttu mynd að Raphael gamla, hvað er hann stór ? Ég er eimitt með einn lítinn. :oops:
Er ekki einn skali að flækjast þarna í búrinu, hvernig er sambúðinn hjá honum og Óskarahjónum ?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Velkominn

Gaman að fá annan Óskar-mann í hópinn og vonandi gengur allt upp með seyðin
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Sælir félaganördar.
Ég heiti Birkir og er 28´ára graðhestarokkari og er búinn að vera að vinna í uppeldisbransanum í 5 ár. Heimshornaflokkari og gríðarlegur dýravinur. Ég er svo pc að þegar kemur að ferfætlingum og fuglum þá segist ég ekki eiga dýrin, heldur að ég búi með þeim og passi þau þegar þau þurfa. Uss!
Það eru alltaf kettir í kring um mig og virðist ná góðu sambandi við þá og hef átt í innihaldríkum samskiptum við þessa meistara síðan ég fæddist. Núna er ég með þrjá ketti, Pílu, Örvar og Hannes.
Einnig á ég 2 búr en þau eru tóm. Ég var að kaupa mér annað sem ég ætla að setja upp í beinni útsendingu á svona dagbókarþræði eins og tíðkast hér um slóðir. Það mjakast, en ég ætla að koma upp viskerfi sem verður rúlað af ameríksum síkliðum og ætla ég að takast hið ómögulega - að láta green terror og fire mouth vera hrikalega chill saman ásamt öðrum innflytjendum sem eiga ættir sínar að rekja til amazón.
en já, ég hef verið með fiskabúr on and off síðan ég var polli, en núna er kominn tími á að verða fullorðins.

þakkir til allra sem hafa hjálpað mér hérna hingað til. bjallið í mig ef ykkur vantar Rober Redford style cat whisperer....
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Image

....ég elska ketti. :wink:
Image
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Post by magnum »

Vargur wrote:Verður þú ekki að fá þér búr fyrir seyðin ?
Áttu mynd að Raphael gamla, hvað er hann stór ? Ég er eimitt með einn lítinn. :oops:
Er ekki einn skali að flækjast þarna í búrinu, hvernig er sambúðinn hjá honum og Óskarahjónum ?
Jú ég verð að redda mér búri þegar þau stækka.
Ég var á kaf í skalla eldi og var þá með þá í tunnum, þannig að ef ég fæ ekki búr get ég alltaf hent þeim í tunnurnar.
Raphaelinn er ekkert svo stór (15-18 cm) en sagan af honum er nokkuð skrautleg.
Þegar ég fékk hann var hann um 10 ára gamall og ég var með hann í 7 eða 8 ár í búrinu hjá mér, en svo flutti ég á vestfirði um tíma og systir mín fékk búrið og sá gamli fékk að fljóta með. Svo þegar við komum aftur til Ólafsfjarðar þá frétt ég af því að systa var hætt með búrið og þá kom ekkert annað til greina en að henda því aftur upp. Svo þegar ég næ í búrið mitt sem var geymt í bílskúrnum hjá systu (tómt) og komin með það útí bíl kallar hún á mig og spyr hvort ég ætli ekki að taka gamla með.
Ég hváði, því ég vissi að búrið hafði ekki verið í notkun hjá henni í rúman mánuð. Þá kunni hún ekki við að láta þann gamla og henti honum ofaní lítið búr sem sonur hennar var með ásamt nokkrum gúbbum.
Þegar ég veiddi hann uppúr þá var hann komin með mött augu og annar stóri fálmarinn var rotnaður af honum og hann var allur grár.
Ég setti hann svo útí búrið þegar ég var búinn að setja það upp. Hann hvarf strax undir steinboga sem ég var með þar.
Fyrstu dagana var engin hreifing. Svo tók ég uppá því að setja rör undir steininn og láta fóðurköggla renna eftir því til hans. Og viti menn hann tók að braggast, gráminn fór af honum og augun eru svo til hrein. En þetta með fálmarann, þá hefur hann ekki vaxið aftur. Svo fór ég að gefa honum rækjur (Íslensk djúprækja) með Óskurunum og hann er orðin feitur og pattaralegur í dag.
Ég skal senda inn mynd af þeim gamla þegar færi gefst.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Hakka til að sjá mynd af kjépps
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

sæll magnús .

já þetta er verulega spennandi og fylgist ég með af miklum áhuga. . !
þú verður að vera duglegur að leyfa okkur að fylgjast með . .

langar að vita samt meira um tæknilegu hliðina hjá þér.
hvernig dælur ertu með ?
hvað skiptir þú oft út vatni ?
hvað ertu að gefa þeim að éta ?
hversu lengi logar ljósið hjá þeim?
afhverju viltu herða vatnið ? nú þola þeir ansi breitt hörkustig.
ertu að mæla vatnið no2 no3 ammo hverjar eru tölurnar ?

reglulega fallegt búr hjá þér magnús !
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Post by magnum »

nebbi wrote:sæll magnús .

Þegar fiskarnir eru orðnir svona stórir þá er vatnið fljótt að verða súrt. Ég var að nefna þetta við félaga minn sem er læknir og hann benti mér á það að þá væri málið að setja sóda útí vatnið á móti. Eftir þetta skipti ég mjög sjaldan um eitthvað vatn bara bæti matarsóda þangað til ph gildið er orðið gott.
Dælan er að gerðinni Eheim Pr II 2026-28
Eftir að ég fór að gefa þeim ánamaðka og rækjur tóku þeir fyrst við sér að stækka og urðu mun litfallegri.
Ljósið logar frá 7 til 23. Ég er bara með mid range PH indicator frá Wardley. og er með ph gildið frá 6.5-8
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

rosalegt flott búr :D
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

jæja nú væri gaman að fá fréttir takk :)
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Post by magnum »

Jæja þá koma loks myndir af seiðunum.
Þau eru orðin um 1 cm á lengd. Ég fékk ónýtar artemíur þannig að það klaktist svo til ekkert út og þau seiði sem ekki fengu artemíur dápust (um 260). Það eru eftir sirka 30 seiði.
Image
Image
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Uss, þú nærð þessu öllu í næsta goti.
En þeir sem eftir eru eru svakalega flottir.

hvernig myndavél ertu með?
sindris
Posts: 154
Joined: 08 Jan 2007, 17:38

Post by sindris »

Ég ætla að taka wild guess og giska á Canon EOS 20D
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

er ekkert að frétta af þessu??
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Sendibill
Posts: 191
Joined: 08 Feb 2008, 01:04
Location: Reykjavik
Contact:

Post by Sendibill »

magnum wrote:
Vargur wrote:Verður þú ekki að fá þér búr fyrir seyðin ?
Áttu mynd að Raphael gamla, hvað er hann stór ? Ég er eimitt með einn lítinn. :oops:
Er ekki einn skali að flækjast þarna í búrinu, hvernig er sambúðinn hjá honum og Óskarahjónum ?
Jú ég verð að redda mér búri þegar þau stækka.
Ég var á kaf í skalla eldi og var þá með þá í tunnum, þannig að ef ég fæ ekki búr get ég alltaf hent þeim í tunnurnar.
Raphaelinn er ekkert svo stór (15-18 cm) en sagan af honum er nokkuð skrautleg.
Þegar ég fékk hann var hann um 10 ára gamall og ég var með hann í 7 eða 8 ár í búrinu hjá mér, en svo flutti ég á vestfirði um tíma og systir mín fékk búrið og sá gamli fékk að fljóta með. Svo þegar við komum aftur til Ólafsfjarðar þá frétt ég af því að systa var hætt með búrið og þá kom ekkert annað til greina en að henda því aftur upp. Svo þegar ég næ í búrið mitt sem var geymt í bílskúrnum hjá systu (tómt) og komin með það útí bíl kallar hún á mig og spyr hvort ég ætli ekki að taka gamla með.
Ég hváði, því ég vissi að búrið hafði ekki verið í notkun hjá henni í rúman mánuð. Þá kunni hún ekki við að láta þann gamla og henti honum ofaní lítið búr sem sonur hennar var með ásamt nokkrum gúbbum.
Þegar ég veiddi hann uppúr þá var hann komin með mött augu og annar stóri fálmarinn var rotnaður af honum og hann var allur grár.
Ég setti hann svo útí búrið þegar ég var búinn að setja það upp. Hann hvarf strax undir steinboga sem ég var með þar.
Fyrstu dagana var engin hreifing. Svo tók ég uppá því að setja rör undir steininn og láta fóðurköggla renna eftir því til hans. Og viti menn hann tók að braggast, gráminn fór af honum og augun eru svo til hrein. En þetta með fálmarann, þá hefur hann ekki vaxið aftur. Svo fór ég að gefa honum rækjur (Íslensk djúprækja) með Óskurunum og hann er orðin feitur og pattaralegur í dag.
Ég skal senda inn mynd af þeim gamla þegar færi gefst.
Ég er nú orðinn svolítið spenntur að sjá myndirnar af þeim gamla... :P
Hlynur Jón Michelsen
Sendibill.com
IAmTheSun
Posts: 41
Joined: 13 Oct 2008, 19:22
Location: HFJ beibý ;)
Contact:

Post by IAmTheSun »

Heyrðu , hef MIKINN áhuga að fá tvo óskara hjá þér þegar þeir eru tilbúnir á heimili, Magnum :D

Átti tvo svona, þeir dóu því miður :(
Langar mikið í svona Oscara aftur, ekkert smá fallegir og þegar þeir eru litlir eru þeir allgjörar dúllur :wub:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Veit ekki alveg af hverju fólk er að svara þessum pósti, það eru næstum 2 ár síðan seinast var skrifað eitthvað hér.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sendibill
Posts: 191
Joined: 08 Feb 2008, 01:04
Location: Reykjavik
Contact:

Post by Sendibill »

keli wrote:Veit ekki alveg af hverju fólk er að svara þessum pósti, það eru næstum 2 ár síðan seinast var skrifað eitthvað hér.
Hver veit nema hann komi aftur! :)
Hlynur Jón Michelsen
Sendibill.com
Post Reply