Ég man ekki með fullri vissu hverjir eiga tvær síðustu myndirnar.
Sjálfur átti ég mynd 4 og er reyndar steinhissa að hún hafi fengið þetta mörg atkvæði, mér finnst hún skemmtileg en hún er engan vegin í nógu góðum fókus.
Sjálfur kaus ég mynd 2 og finnst hún besta myndin, fókusinn er á andlitið á fisknum og það er miðja myndarinnar, myndin vel heppnuð nema hvað draugurinn í bakgrunninum fer aðeins í taugarnar á mér.
Ef ég hefði ekki kosið mína mynd hefði mynd 2 fengið mitt atkvæði. Það er spurning hvort hægt sé slökkva á þeim möguleika að geta valið sína mynd. Það væri fróðlegt að vita hvernig hefði farið ef við mættum ekki kjósa eigin myndir. Þeir sem það gerðu gætu sagt hér hvað þeir hefðu annars kosið.
Ég er alveg sammála Vargnum um drauginn í mynd Kela. Ég prófaði að taka hann út og þá gæti myndin litið svona út.
Andri Pogo wrote:Sá myndina þína Rodor óphotoshoppaða í öðrum þræði og mér finnst hún margfalt betri þannig, hefðir eflaust fengið fleiri atkvæði þannig
Málið er bara það að hún er Photoshopuð þar líka, það hefur enginn séð hana nema ég óbreytta. Ég kann mjög lítið á Photoshop og þessi útgáfa af myndinni birtist allt í einu þegar ég smellti á einn takka. Það sem ég ætlaði að gera en tókst ekki var að gera bakgrunninn litlausari. En ég held að myndin eins og ég sendi hana gæti verið fín á veggflísar.
Annars má benda á að tilgangurinn með Photoshop er oftar en ekki til þess að ná fram réttum lit á myndina. Og það er nákvæmlega það sem menn gerðu með filmurnar þá voru menn bara að gera þetta með öðrum græjum.
jájá ég sá að hún var líka aðeins photoshoppuð en var að meina hana samt, Photoshop er fínt í hófi og gerir góðar myndir enn betri.
hin er eins og einhver sé að missa sig í photoshop stillingum ekkert illa meint samt
Að halda svona keppni er skemmtileg viðbót við spjallið. Ég var að taka þátt í henni í fyrsta skipti og hafði mjög gaman að. Það var til að mynda jöfn keppni milli nokkurra mynda sem gerðu keppnina enn meira spennnandi. Og svo lýkur henni með því að tvær eru jafnar.
Hvað segir fólk um að láta kjósa á milli þeirra mynda sem verða jafnar í efsta sæti í framtíðinni?
Það er svo sem ok en það hefur komið nokkuð oft fyrir að 2 eru jafnar. Ég reyndar sé fyrir að báðar myndirnar fari áfram í mynd ársins sem verður svo valið um í lok árs.