Loðnar plöntur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Loðnar plöntur

Post by Tappi »

Hvað get ég gert til að hressa pönturnar mínar við.

Þær eru loðnar og frekar rytjulegar s.s. eru ekki að dafna vel.

Ég er með möl á botninum og hef ekki verið að nota plöntunæringu en setti smá hjá þeim í fyrradag.
Hitinn í búrinu er ca.28° en hitarinn er samt bara stilltur á 24°.
Þetta er 85 L búr með nokkrum sverðdrögum og 3 ancistrus. Ég skipti um 20-25 % vatn vikulega.

Fiskarnir dafna vel en plönturnar ekki.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

þetta er líklegast hárþörungur (þörungur sem er grænn og líturút eins og hár)

ef svo er þá er best að fá sér fisk sem kallast SEA Siamese Alge Eater
Image
þessi fiskur borðar svona hárþörung
ImageImage
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hitinn er í hærri kantinum fyrir plönturnar svo er ljósið náttúrulega stórt atriði, hvernig lýsing er í búrinu ?
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

... og hvernig er ljósatíminn?
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Ljósatíminn er ca. 10 tímar

Ég leit á perurnar og þetta stóð á þeim :
pera 1- power - glo, 24"/58.98cm 20w
pera 2 - Arcadia, marine white, fmw 18-(24" 600mm), hich output marine lamp og ínní þríhyrningi stóð new concept aquarium lamp

Það eru speglar bakvið perurnar.

Varðandi hitann þá er hitarinn bara stilltur á 24° en samt er hitinn alltaf svona hár.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Prófaðu að lækka á hitaranum eða bara taka hann úr sambandi.
Hveð eru þetta gamlar perur ? Kannski er málið að fara að endurnýja þær eða skipta út marine perunni fyrir gróðurperu ef þú ert að leggja einhverja áherslu á gróðurinn.
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Búrið og perurnar þar af leiðandi eru ný keypt í júlí.

Ég ætla að prófa að kippa hitaranum úr sambandi en ætti ég þá ekkert að vera fjárfesta í þessum fiskum sem éta þörunginn?

Sjáum til með perurnar, eru þær ekki svo dýrar ?

Takk kærlega fyrir góða svörun, ég hélt að það tæki marga daga að fá svör :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Skrýtin perusamsetning í nýju búri.
Endilega keyptu þér sem flesta fiska sem halda niðri þörung, Sae og ancistur osf.
Gróðurperur eru ekkert mikið dýrari en aðrar perur.
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Jæja ég fór eftir öllum ráðum sem þið gáfuð mér :) .

Fór og keypti nýja gróðurperu, tók hitarann úr sambandi og keypti tvo SEA (Siamese Alge Eater) sem hafa fengið nöfnin Skapti og Skafti eftir tvíburunum úr Tinna bókunum :roll:

Hitinn hefur allavegna lækkað í 25° og svo er bara að bíða og sjá hvort plönturnar taki ekki við sér

Takk fyrir
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Gæti verið að sjálvirka unitið í hitaranum hafi klikkað og hann ekki hætt að hita þegar réttu hitastigi var náð
Kv. Jökull
Dyralif.is
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Hitarinn er samt nýr þannig það væri ansi léleg ending.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já frekar
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply