Sá þetta í morgun og hef ekki hugmynd um hvað er að fisknum. Þetta er svona Saulosi (held það sé skrifað svona) og ég hélt að þetta væri karl svo varla geta þetta verið risa vaxin hrogn
Uss, þetta hef ég ekki séð áður og líst ekkert á.
Mér dettur í hug eitthvað form af svoköllu "bloat" sem er oft fylgifiskur offóðrunar og stress.
Vonandi er einhver hér sem kannast við þetta.
Persónulega mundi ég "flusha" þessum fisk snarlega.
Offóðrun - ég er að gefa þeim 2x á dag og þeir klára skammtinn alveg innan 30 sek. Veit ekki af hverju hann ætti að vera stressaður Skipti um ca 30% vatn í gær og svo í dag er hann allt í einu svona
En ég reyni þá að veiða hann uppúr
Vá ég var einmitt að sjá mjög svipað á Zebrakerllingunni minn og var að velta fyrir mér hvað þetta væri, þetta er að vísu ekki alveg svona stórt á henni. Hún hefur pottþétt ekki verið offóðruð enda varla búin að hafa séns á að éta neitt fyrir barsmíðum karlinum spurning hvort þau hafi verið bitin svona illa að þarmarnir liggi úti
Viðbót eftir smá umhugsun:
Annars er þessi bloat kenning hjá Vargi ansi rökrétt þegar ég hugsa málið stress getur sett bloat af stað og þarf ekki endilega að hafa neitt með fóðrun að gera.
Hér er hægt að lesa smá um Bloat: http://www.cichlid-forum.com/articles/malawi_bloat.php
Viðbót 2
Og þegar ég hélt áfram að leita á netinu fann ég þessa grein og myndin af fisknum er nánast alveg eins og kerlingin mín lítur út núna nema það vantar þetta fyrirbæri neðan á henni svo bloat er málið: http://www.wetwebmedia.com/FWSubWebInde ... isfaq3.htm
Átti að vita að Varguinn hefur alltaf rétt fyrir sér
Skrýtið, nú sé ég ekkert og veit ekki hvaða fiskur var með þetta??
Ætti ég ekki að bíða og sjá hvað gerist. Gerði heiðarlega tilraun í dag að ná honum uppúr en tókst ekki og núna er þetta farið
Vona að þetta sé samt ekkert alvarlegt.
Sé hvernig þetta verður á morgun.
Jæja, hann er að syngja sitt síðasta blessaði fiskurinn
Hann er búinn að finna sér stað til að deyja á. Ég er búin að ætla að taka hann uppúr í 2 skipti en þá syndir hann í burtu en fer svo alltaf á sama staðinn aftur eiginlega undir einum steininum. Er nokkuð verra að leyfa honum bara að deyja þarna og taka hann svo uppúr?? Ég á ekki eftir að ná honum lifandi