kínversku fiskabúrin í fiskó ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

kínversku fiskabúrin í fiskó ?

Post by Hrappur »

sæl öll

hafið þið einhverja reynslu af kínversku búrunum sem eru í fiskó núna ?
gott verð á þessu 600+ ltr á 109 kall með loki og skáp. td.

ekki það að maður fá leyfi fyrir fleiri búrum svosem :)
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ekkert heyrt um þau,en líst vel á verðið,er þetta þá srípað verð með engum dælum ?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Eri kínverskbúr eitthvað spes ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

líklega bara ódýrari í framleiðslu og kannski ekki sama 'gæðavara'
-Andri
695-4495

Image
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

name?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég skoðaði þessi PingPong búr í gær og leist ekkert sérstaklega vel á þau fyrir utan verðið, búrin eru löng og mjó og henta ekki hvaða fiskum sem er en það sem mér leist verst á eru lokin, þau virtust ekki vera vönduð smíð og ég hvet þá sem hafa hug á að fjárfesta í svona búri að skoða þau vel og líka leita sér upplýsinga um hvort ljósin standist Íslenskar kröfur.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

spyr eins og ulli, veit einhver product name ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dýragardurinn
Posts: 143
Joined: 11 Dec 2006, 16:29
Location: Dýragarðurinn

Post by Dýragardurinn »

Þau heita jinlong og voru flutt inn af einstaklingum sem ætluðu að selja þau í Englandi en það gekk ekki upp og þá voru þau flutt hingað.

Ljósin standast íslenskar kröfur, en gert er ráð fyrir að filterinn sé í lokinu og þegar ég skoðaði þessi búr í Keflavík þá vantaði of mikið af búnaði sém þarf til að filterinn í lokinu virkaði.
Dýragarðurinn
Síðumúla 10
108 Reykjavík
S:517-6525
dyragardurinn@dyragardurinn.is
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

bara fínt fyrir þennan pening ef að glerið heldur vatni :P
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já, þetta er örugglega ekki alslæmt. Ég held samt að ég myndi hringja í tryggingafélagið mitt og athuga með vatnstjón af völdum fiskabúrs svona til að vera viss áður en ég fengi mér búr sem hljómar of ódýrt til að vera gott :)


Maður þarf að kíkja á þetta við tækifæri, svo maður viti hvað maður er að tala um :P
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

keli wrote:Já, þetta er örugglega ekki alslæmt. Ég held samt að ég myndi hringja í tryggingafélagið mitt og athuga með vatnstjón af völdum fiskabúrs svona til að vera viss áður en ég fengi mér búr sem hljómar of ódýrt til að vera gott :)


Maður þarf að kíkja á þetta við tækifæri, svo maður viti hvað maður er að tala um :P
fasteignatryggingin borgar vatnstjónið en þú þarft heimilistryggingu/innbúskaskó til að fá búrið sjálft bætt :wink:
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Veit ekki til þess að það sé nokkuð að þessum búrum og held að fólk ætti bara að vera ánægt með að geta fengið svona búr á hlægilegu verði ástæðan fyrir verðinu er ekki að þessi búr séu drasl
Ace Ventura Islandicus
Rodo_r

Post by Rodo_r »

ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

veit hver þessi einstaklingur er sem pantaði þaug.en er mjög samála vargi um að þau henti ekki öllum fiskum.það eina sem mér dettur i hug er skraufiskabúr.held að þau séu öll um 40 cm breið.en já þaug eru ódyr.
personulega myndi ég samn ekki kaupa þau þótt þau kostuðu 50þ vegna asnarlegrar hönnun á þeim.sry gylli...
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Rodo_r wrote:Eru þetta þau kínversku :?:

http://www.engadget.com/2004/08/20/the- ... washbasin/
Hehe þetta er handlaug :lol:
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Smart :!:
Þar til það brotnar úbs...
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Hehe akkurat :), hvernig ætli sé að þrífa svona
Kv. Jökull
Dyralif.is
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

4,800 dollara fyrir vask...neimm
Rodo_r

Post by Rodo_r »

User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hahaha meira ruglið
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég fór áðan og kíkti á þessi búr... Rúnnuð horn og skáparnir virðast gæðalegir. Skoðaði ekki ljósin.

Þessi búr eru tilvalin fyrir til dæmis diskusa eða að vera full af einhverjum minni fiskum.

Fínustu búr, gætu líklega verið fín fyrir afrískar síkliður (malawi) en ekki neitt sem verður yfir 20cm eða svo.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Þessi búr eru ekki verri en önnur búr til sölu hér á landi.Það munar 5cm á breidd og á t.d Juwel búri sem eru einnig framleidd í Kína þau virka mjórri en "venjuleg" búr afþví að þau eru rúnuð,ljósin eru ekki verri en hver önnur og skáparnir sterklegri en sambærilegir skápar sem ég hef séð og að búrin séu of mjó fyrir suma físka er kjaftæði, ef eitthvað ræður því hvað er hægt að hafa í búri þá er það lengdin ,þannig að efað þetta er ekki díll til að skoða þá veit ég ekki hvað er ....... og glerið er þykkt í þessum búrum og frágangur í lagi eftir því sem best fæ séð.
Ace Ventura Islandicus
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

jæja en hver hefur sina skoðun.og það á bara að virða það.rly simple :wink:
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

animal wrote:Þessi búr eru ekki verri en önnur búr til sölu hér á landi.Það munar 5cm á breidd og á t.d Juwel búri sem eru einnig framleidd í Kína þau virka mjórri en "venjuleg" búr afþví að þau eru rúnuð,ljósin eru ekki verri en hver önnur og skáparnir sterklegri en sambærilegir skápar sem ég hef séð og að búrin séu of mjó fyrir suma físka er kjaftæði, ef eitthvað ræður því hvað er hægt að hafa í búri þá er það lengdin ,þannig að efað þetta er ekki díll til að skoða þá veit ég ekki hvað er ....... og glerið er þykkt í þessum búrum og frágangur í lagi eftir því sem best fæ séð.
ég verð að hringja í Þjóðverjana sem smíða juwel og láta þá vita að það sé búið að færa verksmiðjuna til kína áður en þeir mæta í vinnu á mánudaginn
þeir hafa verið snöggir að færa verksmiðjuna þar sem hún var í Þýskalandi í gær
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Hólmfríður
Posts: 138
Joined: 19 Sep 2006, 02:49

Post by Hólmfríður »

swiss !
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

swiss ? ég vissi nú ekki ,það i "gamla" heimalandi min eru framleiður fiskabúr :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég held að Hófí sé bara hlutlaus eins og Sviss. :)
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Ég fór og skoðaði þessi búr áðan og vill koma með nokkra punkta

Þessi búr virðast vera fínustu smíði og ekkert verri en þessi blessuðu Juwelbúr sem margir eru að tilbiðja

Einnig er lokið mun betur hannað en þessar þunnu plötur á Juwelbúrunum

Búrin eru einnig sílikonuð að utan sem er plús svo ég held að það séu ekki miklar líkur á því að þau fari að leka

Skápurinn er flottur, þetta er fínn gripur á mjög góðu verði, allt sem að er ódýrt þarf ekki endilega að vera drasl !
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég skil nú ekki af hverju þeir sem eru svona hrifnir af Kínabúrunum eru endilega að bera þau saman við Juwel en ekki aðra framleiðendur en fyrst svo er tel ég Juwel búrin að öllu leiti betri en þessi búr fyrir utan það að kínabúrin bjóða betra verð pr. lítra.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Ok gummi, ef svo er þá biðst ég afsökunar á því að fara með rangt mál varðandi framleiðsluland.Hafði heimildir sem sýndu svo
Ace Ventura Islandicus
Post Reply